Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 46
Prestafélagsritið.
Rannsóknirnar um æfi ]esú.
41
hans er farið að halda þessu fram? Það er langt frá því, að
hægt sé að komast út af þessu með einhverju auðveldu móti,
t- d. því, að lærisveinarnir hafi einhvernveginn fundið upp á
þessu. Söderblom erkibiskup, sem er allra manna lærðastur í
trúarbragðasögu, segir að þetta, að höfundur trúarinnar er
þegar í stað dýrkaður sem guð eftir dauða sinn, sé algerlega
eins dæmi í sögu trúarbragðanna. Og þó hlaut slík hugmynd
að vera sérstaklega fjarri jafn ströngum eingyðistrúarmönn-
um, eins og Gyðingar voru. Wellhausen hefir líka bent á
það, að ágreiningurinn við Gyðinga og kæran frammi fyrir
Pílatusi vitni um það, að Jesús hafi að minsta kosti gefið
það eitthvað í skyn, að hann væri Messías. Ýmsir þeirra, sem
mest vilja fella niður af sögum guðspjallanna, t. d. sjálfur
Strauss, telja einmitt þetta, að Jesús hafi sagst vera Messías
03 spáð því, að hann myndi koma í skýjum himinsins til þess
að dæma heimsbygðina, meðal þess fáa, sem er óyggjandi.
En ef vér látum þá öll þessi rök njóta sín og höfum fyrir
satt, að Jesús hafi sagst vera Messías, hvað á að segja um
þann, sem slíkan dóm fellir yfir sjálfan sig. Getur nokkur
sagt og haldið slíkt um sjálfan sig nema hann sé sálsjúkur,.
sé brjálaður? Þessu hafa líka fjölda margir haldið fram um
]esú, að hann hafi verið sálsjúkur. Menn reyna að vísu að
milda þetta með ýmsu. Þeir segja, að þetta hafi aðeins endr-
um og eins komið yfir hann. Hann hafi verið flogaveikur,
eða ákaflega æstur með köflum. Sumir milda það með því
að kalla það hrifning (ekstase). Enn aðrir benda á það, hve
skamt sé hér öfganna milli. Snilli og brjálsemi sé á næstu
grösum hvað við annað. Læknir einn frægur, sem las margar
fullyrðingar um þennan sjúkleik Jesú, sagði, að sér þætti
nógu erfitt oft og einatt, að finna hvað gengi að sjúklingum,
sem hann hefði undir hendi langan tíma. En hér þættust menn
Seta sannað á Jesú ákveðinn sjúkdóm mörgum öldum seinna
°S ekki með meiri gögn í höndum en raun gefur vitni um.
Annar geðveikralæknir rannsakaði sæg geðveikra manna.
sem einmitt gengu með þessar hugmyndir, að þeir væri Messí-
asar eða mannkynsfrelsarar, og fanst honum þeir vera dálítið