Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 85
PrestafélagsritiÖ.
AVARP
til dr. theol. Valdimars Briem vígslubiskups á átt-
ræðisafmæli hans 1. febr. 1928.
Flutt af Páli Stefánssyni, bónda að Ásólfsstöðum, í nafni
sóknarbarna og sveitunga.
Við sækjum þig heim í dag, kæri prófastur, nokkrir sveit-
ungar þínir, til þess fyrir okkar hönd og annara þeirra er
heima sitja, að minnast þín og þakka, — þennan merkisdag,
áttugasta afmælisdaginn þinn.
Við höfum svo margt að þakka þér að það verður ekki
talið. Og minningarnar allar eru á eina lund, hvort heldur
þær, er bærast hljóðar í huganum, eða hinar, sem koma fram
í orðum á tungu, að þú mættir vel við una, ef þér þætti
lofið gott. En svo vel þekkjum við þig, að þér mun fátt skapi
fjær, en hlusta á sögu sagða um verðleika þína. Og þó er
það svo, að annað er ekki hægt, ef á þig er minst á annað
borð. En þú mátt sjálfum þér um kenna, eins og sagt var
um mætan mann, sem minst var fyrir skömmu síðan.
Það eru nú liðin nær 45 ár síðan þú komst hingað í sveitina,
með starfshæfileikana óvenju fjölbreyttu og starfsþrána í ríkum
mæli. Námsárin voru að baki, en þroska- og starfsbrautin fram-
undan. Og þú lagðir þegar hönd á plóginn, ekki sem meðal-
maður á neina lund, heldur eins og sá sem mestu fær áorkað. —
Þegar í byrjun féll í þinn hlut forusta helztu opinberra starfa
í sveitinni. Og ég hef það fyrir satt, að svo hafi engan vanda
að höndum borið, innan sveitar og víðar, hvorki þeirra er
minna máttu sín eða meira, að þú hafir ekki verið sóttur að