Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 179
Presíaféiagsritiö. Tvö bréf frá séra Jóni Bjarnasyni.
165
hefi ég aldrei haft ástæðu til að heyra útlistuð af yður.
Melsteðs skoðun er hér dæmd argasta trúarvilla og mín
náttúrl. líka. Mér þykir ilt að standa einn uppi vopnalítill
móti æstum guðfræðingaher, sem lítur út fyrir að ekki vilji
taka ástæðum, heldur heimta aðeins að maður trúi í blindni.
Það er annars engin furða, þó að mínar ræður þyki lítt
kristilegar, þegar t. a. m. Wallins prédikanir hér eru álitnar
hálf-heiðnar, Ingemar.n ekki kristilegt sálmaskáld og Balles
lærdómsbók hneyksli í kirkjunni, ekki að tala um Mynster,
Clausen og Martensen. Hér er alment brúkuð við guðsþjón-
ustur hin gamla Guldbergs sálmabók, sem þér eflaust þekkið
vel. Það er bók, sem mér lízt ekki á — í formlegu tilliti er
hún varla betri en grallarinn okkar gamli. Nú hafa þeir þó
samið eða safnað til nýrrar sálmabókar, því í þessari Guld-
bergs-bók er svo margt af rationalistiskum sálmum, en upp í
þessa nýju taka þeir allrahanda gömul skrípi að búningnum
til, t. a. m. »Aleneste Gud i Himmerig«, óbreyttan, og »Guds
Godhed ville vi prise* dto. og fjölda annara eins, þó leitun
sé á einni einustu strophu mál- og metrisk-réttri í öllum
sálminum. Svo mikil »mani« er hjá þeim í alt hið gamla, að
þeir álíta blasfemí að fá þnssar ófrýnilegu útleggingar í annað
betra form. Hátíð er íslenzka sálmabókin nýja hjá þessari
eymd. Söngurinn í kirkjunni hér er líka hálfaumur, og hef
ég nú aðeins verið í tveim hinna allra helztu. Hvergi eru
enn komin orgel, en það er ekki von á ekki lengri tíma.
Nálega 90 prestar munu vera í þessari sýnódu hingað og
þangað út um Bandaríkin, flestir þó í Wiskonsin, Iowa,
Illinois og Minnesota. Sýnódan gefur hér út kirkjulegt tímarit
í Decorah, er nú kemur út einu sinni í viku, þunt og lélegt
að minni ætlan. í skóla þeirra hér eru um 180 lærisveinar,
en fæstir þeirra ljúka sér af, sumir hætta í miðju kafi, og
margir ganga hinn svo kallaða praktiska veg, þ. e. lesa hvorki
latínu né grísku, en verða skólakennarar hér og hvar í söfn-
uðunum eða fara líka til St. Louis og studera þar tvö ár til
að verða þar prestar (lítt lærðir náttúrlega). Auk þessarar
norsku sýnódu eru til í Ameríku þrjú Skandinavisk kirkju-