Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 86
^restafélagsritiö.
81
Ávarp.
ráðum. En á hvern hátt þú leystir vandkvæði þeirra, ber öll-
um saman um að á einn veg hafi verið: að bæta hvert böl
svo sem unt var — miðla öðrum í einhverri mynd, ef með
fcurfti, en ef sundrungar gætti, þá að jafna deilumálin og
sætta. — Líklega verður ekki sannara sagt eða ljósari líking
Sefin af þessari hlið starfsemi þinnar, en með eigin orðum
tínum, er þú mælir eftir vin þinn látinn: >Hann sléttaði lífið
með lipurð, hægð og ró, og leysti hverja snurðu á æfiþráð
er dró.«
Það lætur að líkum hvers virði það var sveitarfélagi þessu
að hafa þig að foringja í hverskonar baráttu út á við og það
um svona langt skeið. — Um þær mundir var fátt alþýðu-
manna, — eða að minsta kosti færri en nú, — vaxnir því,
að hafa á hendi opinber störf, og mun því mega ætla, að
ematt hafi verið á takmörkum þess, að þeir gætu haldið hlut
sínum eða sótt rétt sinn eða umbjóðenda sinna í hendur þeim,
sem voru ófyrirleitnir ribbaldar. En það er vitanlegt, að enginn
aetlaði sér þá dul að vega að þér, svo nokkru næmi. Til þess
hafðirðu of mikla yfirburði. Og sá leikur myndi aldrei tvívegis
hafinn, ef byrjunin hefir annars nokkru sinni átt sér stað.
Miklu fremur mun hitt hafa verið það algenga, að leita álits
Mns, sérstaklega um nýmæli og annað það, er verulega þótti
‘uáli skifta, og þótti þá gott og sigurvænlegt, ef þér leizt svo
°S hézt því fylgi.
Sveitarfélaginu er skylt að muna og minnast þessa. —
Störfin þín mörgu í þarfir þess og hvernig þú intir þau af
hendi, voru vorboði betri og nýrri tíma. — Margt af því, sem
breyzt hefir hér til hins betra, er beint eða óbeint árangur
þinna verka. Sigurinn, það sem hann nær, ber því að tileinka
fcér. Markið til aukins þroska og menningar skal hafið við
til minningar um þig.
Os þó er flest af þessu tægi aukastörfin þín. Aðalverk-
efnið, sem þú hefir int af hendi og það sem markar dýpstu
sPorin, liggur að miklu leyti á öðru sviði svo sem kunnugt
€r. þar sem er hvorttvegja embættisstörfin þín og sá mikli og
n’erki skerfur, sem þú hefir lagt til íslenzkra bókmenta.
6