Prestafélagsritið - 01.01.1928, Side 76
PrestafélagsritiD.
Gandhi.
71
sögulegt, þótt hér sé ekki talið. Alt af harðnaði á togunum.
Gandhi átti fult í fangi að varna því, að uppreisn væri hafin.
Hann fann, að hann var í raun og veru orðinn í minni hluta
með skoðun sína, en það var af þægð við hann, að þjóðin
hélt sér í skefjum. — Undir árslokin kom þjóðþingið saman.
Forseti þess, sem átti að vera, sat í fangelsi. Umræður urðu
stuttar. Flestir voru sammála. Þeir þóttust hafa setið meðan
sætt var. Nú væri ekki lengur unt að hlýða lögunum. Upp-
reisn væri sjálfsögð. Ekki þó á þann hátt, að grípa til vopna,
en neita skyldi að greiða skatta og að hlýða ranglátum lög-
um. — Fulltrúarnir þóttust vita, að þessi þings-ályktun mundi
verða til þess, að þeir yrðu allir settir í fangelsi, og hæpið
væri, hvort nokkurt þjóðþing yrði haldið aftur fyrst um sinn.
Þess vegna afsalaði þingið sér öllum völdum í hendur Gandhi,
og fól honum að koma þingsályktuninni í framkvæmd, svo
sem hann mætti því við koma. Honum var gefið alræðisvald
í þessu máli. Þó var það áskilið, að ekki mætti hann gera
neinn bindandi samning við stjórnina, nema ný þings-ályktun
kæmi til. — En nú mátti við því búast, að Gandhi yrði
einnig tekinn fastur. Við því var sá varnagli sleginn, að hon-
um var gefið vald til að velja sér sjálfur eftirmann og af-
henda honum völdin í hendur, og svo koll af kolli.
Þessari þings-ályktun var tekið með fögnuði um alt land,
að heita mátti. Næstu viku á eftir gengu 25 þúsundir inanna
í fangelsi viljugir og glaðir, bæði karlar og konur. En ekki
sá högg á vatni. Svo mikið fylgi hafði ályktunin fengið. —
Gandhi hugsaði sér nú að velja eitthvert hérað, sem hann
treysti bezt, til þess að byrja uppreisnina í verki. Héraðið
Bardoli varð fyrir valinu. Það er í grend við Bombay, og
þar höfðu hugmyndir Gandhis alt af fundið góðan jarðveg.
Og 9. febr. 1922 skrifar hann jarlinum »opið« bréf og segir
honum stríð á hendur. Þar segist Gandhi hafa alla ábyrgð
sjálfur á þessu tiltæki; lætur vita, hvar og hvenær uppreisnin
byrji; það sé gert í því skyni, að síðan geri öll héruð á Ind-
landi slíkt hið sama: afsegi að hlýða þeirri stjórn, sem svo
freklega hafi brotið lög og rétt á landsmönnum með ofsókn-