Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 185
PrestaféUgsritið. Tvö bréf frá séra Jóni Bjarnasyni.
171
að það séu ekki tiltök að raska þeirri sterku sannfæringu
hans. Allir aðrir af íslendingum hér vestra, sem nokkuð
hugsa, að undanteknum hans nánustu ættingjum, vilja af al-
huga forðast sýnódumenn sem mest, og nú er þó komið svo
lar.gt, að þeir hafa útvalið tvo menn til að leita sér uppi
hentugt landnámssvæði hér vestur frá. Þannig vona ég að
nýlenda íslenzk geti á komist innan skamms, og það álít ég
lífsspursmál fyrir landa í nálega öllu tilliti. Hinir 2 landa-
leitarmenn, hugsa víst helzt til landtöku vestarlega í Iowa
eða þá í Nebraska, þar sem að minsta kosti að nokkru leyti
væri gott og hentugt sauðland. — Ég kann yður mínar beztu
þakkir fyrir hinar theologisku upplýsingar, sem þér nú sem
fyr hafið verið svo góður að gefa mér. Ég var í svo miklum
vandræðum meðan ofsi klerkanna andspænis mér stóð sem
hæst í vetur, einkum sakir þess, að ég var alveg bókalaus,
en þessir obscurantar afneita öllum vísindalegum guðfræðis-
skoðunum í hjarta sínu, þó þeir opinberlega ekki ætíð dirfist
að láta það í ljósi með skýrum orðum. Annars gef ég ekki
túskilding fyrir þeirra guðfræðisvit, því auk þess sem það er
einstrengingslegt, ristir það sannarlega ekki djúpt. Ég er orð-
inn dauðleiður á að heyra eins andlausar og smekklausar
prédikanir sem þeirra. Það er annars mín föst sannfæring,
að þeir principmæssigt haldi alþýðu í fáfræði; að þeir kunni
að gera það »bona fide« má vera að satt sé. En stefna þessi
er ekki réttlætt fyrir það, og ég geng að því vísu, að þeir
fái einhverntíma að kenna á ófrelsisofsa sínum og læra betri
»mores«. Hið annað merkasta norska (Iíka með dönskum
prestum í) kirkjufélag hér í Ameríku, Conferentsen, sem svo
er kölluð, hefir legið í vetur í grimmúðgasta rifrildi við sýn-
ódu þessa út af trúarmálum. Geta Conferentse-menn þess í
einni sinni blaðagrein, að þeir álíti sýnóduna papistiska, hier-
archiska, universalistiska etc., til skammar og svívirðingar
fyrir hina lút. kirkju og hina norsku þjóð m. m. Sá, sem reit
þessa grein, er norskur theolog, kennari við Conferentse-
skólann í Minneapolis, að nafni Oftedal, er kom frá Noregi í
haust. Er margt í þeirri grein, þótt bitur sé, sem ég mundi