Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 135
Prestafélagsritiö.
Um kristniboð.
129
kristindóms, að vera sífelt að tala um heiðingja í okkar kristna
landi. Þeir, sem þannig tala, vita ekki hvað heiðindómur er.
Þeir skilja heldur ekki hverja þýðingu það hefir, að hvert
einasta mannsbarn í landinu fær kristindómsfræðslu, að haldið
er uppi reglubundnu prédikunarstarfi um alt land, að áhrif
kristindómsins hafa verið meiri og betri á hugina og hjörtun,
á heimilin og löggjöfina, en nokkur okkar er fær um að meta.
3. Með hvaða móti getum við hjálpað þessum mörgu mil-
íónum nauðstaddra manna? — Það erum við í engum efa
um: Alt starf kristniboðanna á að miða að því einu, að boða
heiðingjunum Krist.
III.
Með hvaða móti er unnið að kristniboði?
Kristniboðið er áframhald á því verki, er Jesús Kristur
byrjaði meðal mannanna, og sem hann sjálfur mun fullenda
þegar hann kemur í annað skifti. En hann vann með þess-
um hætti, segja guðspjallamennirnir: »Hann fór um allar
borgirnar og þorpin, kendi í samkundum þeirra og prédikaði
fagnaðarboðskapinn um ríkið og læknaði hverskonar sjúk-
dóma«. — Kendi, prédikaði og læknaði. Þannig vann hann,
sem þekkir allar okkar meinsemdir og veit ráð við þeim
öllum.
Starfsaðferðir kristniboðanna eru einnig þrenskonar, — en
haldast þó æfinlega í hendur og miða allar að því eina og
sama: að boða mönnum Krist. Þeir prédika, kenna og lækna.
Þeir reisa kirkjur, skóla og spítala. Þeir boða heiðingjunum
fagnaðarerindið, kenna þeim kristin fræði og ýmislegt, sem að
gagni má verða, og vinna að margvíslegu líknarstarfi.
Kristniboðsfélög ýmsra þjóða evangeliskrar kristni, hafa frá
byrjun skift hinum mikla trúboðsakri í Kína á milli sín. Með
því móti varð séð fyrir, að enginn hluti þessa víðlenda ríkis
yrði út undan.
Kínatrúboðsfélagið norska, sem kristniboði ykkar hefir unnið
9