Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 98
Prestaiéiagsritiö. Þrjár Norðurlanda kirkjurnar.
93
háskólans, hins vegar í guðfræðideild safnaðanna (Menigheds-
fakultetet).
>Teologiske Menigheds fakultet« var stofnað með lögum
1907, byrjaði að starfa 1908, fékk prófréttindi eftir 1911.
~~ Astæðan til stofnunarinnar var sú, að ýmsum mönnum inn-
an safnaðanna fanst frjálslyndi of mikið hjá guðfræðikennur-
nm háskólans, en alt fór í bál út af veitingu ]oh. Ording
1906. Var þá safnað fé innan safnaðanna til þess að koma
skóla upp fyrir rétttrúaða presta. Safnaðist nægilegt fé til 5
ára. Síðan fékk skólinn ýms réttindi og hlunnindi og er nú
að öllu hliðstæður háskóladeildinni. Safnaðarskólinn byrjaði
1908 með 14 lærisveinum, en hefir nú mikið á 3ja hundrað
lærisveina.
Afleiðing þessarar tvískiftingar varð mikil prestaekla um
tíma. Próf. dr. Olaf Moe, sem er kennari við safnaða-háskól-
ann, segir, að af nálega 700 prestsembættum, sem alls eru í
Noregi, hafi 1920 100 verið óveitt. Játar hann, að þessar
guðfræðideilur hafi fælt marga frá að lesa guðfræði. — Nú
hefir þetta nokkuð breyzt við hina vaxandi aðsókn að guð-
fræðideild safnaðanna. Það þykiráhættu minna. Minna tortrygðir.
Samfara þessari tvískiftingu skólanna er flokkaskifting og
sundrung innan prestastéttarinnar. Eru flokkarnir fjórir, sem
prestarnir nú skipa sér í, þeir sem ekki eru þá utan flokka.
Félög þessi nefna sig: 1. „Fremskrittsgruppeþað eru þeir
frjálslyndu. 2. „Bekendelsestro presters broderkreds", það eru
hinir íhaldsömu, sem halda fram játningum kirkjunnar. 3.
„Norske presters kristelige samling“ (stofnað 1920). í þeim
félagsskap eru þeir, sem forðast vilja deilur um trúmál, en
óska samvinnu jafnt við frjálslynda og íhaldsmenn í trúarefnum.
4. Loks er nýr flokkur, stofnaður 1927, með krislilegt frelsi
og umburðarlyndi í trúarefnum á stefnuskrá sinni; nefnist
hann „Norges Landslag for frilynd Kristendom“. — Þannig
standa prestarnir í fylkingum, frjálslyndir og íhaldsamir hvorir
Segnt öðrum, og svo milliflokkur, sem vill vera í samvinnu
við báða flokka og eiga í friði við alla.