Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 70
Prestafélagsritið.
Gandhi.
65
Gandhi er altaf auðtrúa á það sem gott er. Hann tekur
þessum boðskap með fögnuði, og ræður löndum sínum ein-
dregið til þess að þiggja sáttaboðin. Hann segir, að auðvitað
sé það lítið, sem í boði sé, en þó spor í áttina og vottur þess
að stjórnin á Englandi sé að sjá að sér. Um þetta voru þó
mjög skiftar skoðanir. En Gandhi hafði sitt mál fram, eins og
vant var. Það var samþykt að láta sér nægja fyrst um sinn
þessa litlu tilslökun. En þar var Gandhi illa vonsvikinn, eins
og oftar. Því að sá sem ekki vildi neina tilslökun, var einmitt
sjálfur jarlinn á Indlandi. Hann hafði boðskap konungs að
engu. Hann lét reyndar opna fangelsin og leiða fangana út,
en ekki til lausnar, heldur til aftöku. Margir þeirra voru af
lífi teknir, sem konungur hafði óskað að náða skyldi. — Nú
þótti Indverjum auðsætt, að konungsboðskapurinn hefði verið
tálbeita ein, til þess gerð að ginna þá og friða í bili. — Þar
á ofan hafði nú nefnd sú lokið störfum sínum, sem stjórnin
hafði sett til að rannsaka grimdarverkin í Amritsar. Alit hennar
var svo frámunlega vilhalt, að engu tali tók. Sökudólgarnir
fengu sæmdarmerki og margskonar sárabætur fyrir rekistefnuna.
Óvild og andstygð gegn ensku stjórninni magnaðist. Og til
að reka á smiðshöggið, vildi svo til, að einmitt um þetta leyti
{vorið 1920) varð útgert um forlög Tyrkjaveldis, soldáninn
sviftur sínu forna veldi og ríki hans alt limað sundur. En
það æsti Múhamedsmenn til haturs við Breta. — Með þessu
öllu sýndust vera slitin síðustu tengslin, sem hugsanlegt var,
að haldið gætu Indlandi föstu við England.
Gandhi skrifar jarlinum bréf, aðdáanlega fallegt, en fals-
laust og skorinort. Hann segir, að nú geti Indverjar ekki
frestað því lengur að hefja algerða samvinnu-neitun — hafna
allri samvinnu við stjórn landsins — þangað til hún sjái að
sér og láti Indverja ná rétti sínum. Ekki er hótun hans
svæsnari en svo. Hann segist enn hafa von um að þurfa ekki
að slíta öllu sambandi við England.
Jarlinn virti hann ekki svars. — Þá lætur Gandhi það boð
út ganga, að 1. ágúst skuli hafin fullkomin samvinnu-neitun
um alt land; en daginn áður, 31. júlí, skuli halda heilagt með