Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 118
112
Kristleifur Þorsteinsson:
Prestafélagsritið.
var hann upprunninn, af bændakyni í báðar ættir. Þegar hann
kom að Reykholti var hann orðinn aldraður maður, 67 ára.
Kona hans hét Þórdís Jónsdóttir aðstoðarprests frá Garði.
Attu þau fjölda barna, sem öll voru nokkuð roskin, er þau
fluttu suður að Reykholti. Sjö af börnum þeirra komu með
þeim hingað, synir fjórir og þrjár dætur.
Jónas prestur var talinn skarpgáfaður og mælskur ræðu-
maður, en stórorður mjög og var honum mest lagt það til
lýta. Hafði hann að ýmsu leyti verið mikill myndarmaður, en
var búinn að lifa sitt fegursta, er hann kom hér, og gekk því
ekki mikið í augu eftir glæsimennið mikla, Þorstein Helgason.
Son sinn, sem líka hét Jónas, hafði hann hér sem aðstoðar-
prest. Hann var vinsæll maður og fékk bezta orð. Dó hann
á undan föður sínum ógiftur og barnlaus. Síðasta prestsverk
hans var að skíra barn á Húsafelli, en veiktist af lungnabólgu
á heimleið og dó eftir fáa daga. Voru þeir feðgar jafnan
nefndir í daglegu tali Jónas gamli og Jónas yngri. Varð þá
gamli Jónas að segja af sér prestsembætti sökum elli og sjón-
leysis. Það sagði mér maður, sem var hér í Reykholti ungi-
ingur síðustu æfiár gamla Jónasar, sem þá var orðinn sjón-
laus, að hann hefði látið leiða sig út í kirkju á hverjum degi.
Féll hann á kné fyrir altari og baðst fyrir heitt og innilega.
Af þessari stuttu frásögn má mikið marka, hver trúmaður séra
Jónas var í sínu insta eðli. Hann dó hér 1861 88 ára gamall.
Var þá hjá tengdasyni sínum, séra Vernharði Þorkelssyni.
Frá séra Jónasi eru nú komnar fjölmennar ættir. Sonur hans
var Þórður yfirdómari faðir Jónasar landlæknis og Þórðar
prests í Reykholti. Þrír af sonum hans voru bændur í Reyk-
holtssókn: Sigurður á Hofstöðum, Olafur á Norðurreykjum og
Jón í Skógum. Ættir frá þeim öllum komnar. Margt af þess-
um ættmönnum var heldur ófrítt, dökkhært og freknótt. Fljót-
huga og fljótmælt, gjafmilt og brjóstgott. En sumir töldu skort
á hreinlyndi ættareinkenni, en hve hæft hefir verið í því, veit
ég ekki.
Séra Þórður lét Gísla Jakobsson á Augastöðum, smíða
legstein á leiði séra Jónasar afa síns. Bað hann vin sinn,