Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 65
60
Kjartan Helgason:
Prestafélagsritið.
skifting; stéttirnar eru stranglega sundur skildar, og þeir sem
í engri stétt eiga heima (paríah) svo fyrirlitnir, að aðrir mega
engin mök við þá eiga, né nærri þeim koma. Gandhi mælir
bót stéttaskiftingunni, og þykist sjá vit í henni, eins og öðru
sem þjóðlegt er; hún sé ekki annað en skynsamleg verka-
skifting, ef rétt sé með farið. En hinu heldur hann fast fram,
að allar stéttir séu jafn-réttháar og allar jafn-virðulegar. Og
það segir hann vera óguðlegt að fyrirlíta þá sem utan stétta
eru. Hann hefir beinlínis tekið þá aumingja að sér, og beitir
til þess öllu afii að bæta kjör þeirra. Úr þeirra flokki er fóst-
urbarn, sem hann hefir tekið að sér og gengið því í föður-
stað. Merkur maður, sem um Gandhi hefir skrifað, segir það
eitt vera nóg til að gera nafn Gandhis ódauðlegt í veraldar-
sögunni, hvernig hann hefir tekið málstað stéttarleysingjanna
og breytt hugsunarhætti þjóðarinnar um þá.
Af þessu er auðsætt, að Gandhi er ekki blindur af ætt-
jarðarást sinni og þjóðernis-dýrkun. Hann hikar ekki við að
rísa öndverður móti öllu, sem honum þykir ljótt í fari þjóðar-
innar. Þó ræðst hann ekki á það til þess að rífa það niður
miskunnarlaust, heldur til þess að beina því í skynsamlega átt,
svo að það verði gott og fagurt, sem áður var ljótt, af því að
það var misskilið, eða því var misbeitt.
Dæmi þess er ineðal annars dýrkun Hindúa á kúnni. Kýrin
er í þeirra augum heilög. Og Gandhi tekur að sér að verja
þá trú eða færa til sanns vegar. Fyrst og fremst eru nú allar
skepnur helgar, segir hann. Menn og skepnur eru systkin. Þú
átt að elska náunga þinn eins og sjálfan þig, og — náungi
þinn er alt sem lifir. En af öllum skepnum er kýrin nákomn-
ust manninum; hún er sannkölluð fóstra hans; og þess vegna
verður aldrei ofgert að þakka henni og vernda hana öðrum
skepnum fremur.
Um fastheldni sína við Hindúa-trú segir Gandhi sjálfur, að
hún sé sér ósjálfráð; hann geti enga ástæðu fært fyrir henni,
ekki fremur en fyrir ástinni, sem hann ber til konu sinnar.
»Ég veit«, segir hann, »að konan mín er ekki öllum konum
fremri né gallalaus. Þó er hún mér dýrmætust allra manna.