Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 64
Prestafélagsritið
Gandhi.
59
á þjóð sína sem hann. Það er eins og öll þjóðarsálin eigi ser
fulltrúa í þessum eina manni. Þess vegna skilja landar hans
nann svo vel og eru svo fúsir að fylsia honum.
Flestir Hindúar eru fyrir löngu farnir að sjá það, að þeir
hafa ekkert bolmagn við Bretum. En nærri því í einu vet-'
fangi fær Gandhi vakið þá til að trúa — ekki á mátt sinn
°9 megin í þeirri merkingu sem við þekkjum ekki til að
trúa á aflið í hnefanum, heldur á aflið í mannssálunum. í
einni blaðagrein sinni segir hann með sinni venjulegu hóg-
værð: »Ég vildi að ég gæti sannfært Indland um það, hver
máttur því er gefinn. Indland á sál, sem ekki verður kúguð
né drepin. Hún er þeim mætti gaedd, að ekkert hervald og
ekkert auðvald má sín neitt á móti henni*. Gandhi ann
landi sínu og þjóð hugástum. En eitt er þó, sem hann metui
meira. Það er samvizkan. Hann telur sér sæmd mikla að vera
Hindúi, en hitt er honum þó fyrir öllu, að gera rétt. blaði
sínu segir hann einu sinni: »Ef Indland færi að trúa á bol-
magn sitt og grípa til vopna, þá yrði ég að flýja land mitt,
því að þá misti ég þá miklu virðingu, sem ég ber fyrir því.
Föðurlandsást mín verður altaf að lúta í lægra haldi fyrir trú
minni. Ég hjúfra mig upp að brjósti Indlands eins og barn
að móður, því að af Indlandi einu vil ég þiggja þá næringu,
sem andi minn þarf. En ef það synjar mér þess, þá er ég
móðurlaus og á engan að. Þá mundi ég fara og fela mig ein-
kversstaðar uppi á Himalayafjöllum, svo að enginn maður
þurfi að horfa upp á þjáningar mínar*.
Líkt er að segja um alt sem Indlandi við kemur. Gandhi
ann öllu, sem sannarlega er þjóðlegt. Það er ánægjulegt að
heyra ummæli hans um trúarbrögð Hindúa. Hann er fastheld-
inn við þau. Og þó er hann frábærlega umburðarlyndur og
viðsýnn í trúarefnum, og kann að meta alt gott, hvaðan sem
það kemur. Hann viðurkennir t. d. að hann eigi kristindóm-
inum ómetanlega mikið að þakka. Alla starfsaðferð sína segist
hann hafa lært af orðum ]esú Krists. Og hann sér vel gall-
a«a á ýmsu í trúarbrögðum Hindúa og trúarsiðum. Þar er
ýmislegt, sem okkur þykir fáránlegt, t. d. hin alræmda stétta-