Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 184
170
Tvö bréf frá séra ]óni Bjarnasyni. Prestafélagsritið.
— Miðinn er úti. Fyrirgefið líka þennan »appendix*. Verið
æfinlega falinn Drottins varðveizlu af yðar elskandi lærisveini
Jóni Bjarnasyni.
II.
Decorah, Iowa, 5. Maí 1874.
Háttvirti elskul. vin!
Hjartans þökk fyrir bréf yðar úr fyrstu póstskipsferðinni.
Hú þarf ég ekki lengur að liggja í trúardeilum við klerklýð
norsku sýnódunnar. í byrjun febrúarmánaðar hættu kunningj-
ar mínir að troða að mér hinum ofsafengnu orþodoxistisku
trúarskoðunum sínum. Þeir voru þá búnir að sjá það út, að
öll þeirra ofstæki hreif ekkert á mig, og hafa síðan verið
mér náðugir. Um það leyti báðu þeir mig að taka að mér
tímakenslu nokkra hér í skóla þeirra, einkum í latínu, og sú
kensla mín hefir þó fundið svo mikla velþóknan í þeirra
augum, að þeir hafa nú nýlega boðið mér reglulegt kennara-
embætti framvegis með viðunanlegum kjörum. Þessu tilboði
hefi ég ásett mér að taka, en þó ætla ég aðeins að binda
mig hér fyrir næsta ár, því öll hin andlega stefna klerkalýðs
þessa líkar mér enn sem fyr herfilega sökum ófrelsis þeirra
og fanatisku skoðana nálega á öllum hlutum. Verði landar
hér vestra þá komnir svo langt, að prestur geti lifað af því
að þjóna þeim, þá tekst ég líklega það á hendur; en verði
það ekki, þá hverf ég þó líklega héðan burt, því prestur í sýn-
ódu þessari hefi ég fyrir löngu ásett mér aldrei að verða og
það jafnvel þótt þeir kunni eitthvað að slaka til, og það er
mín fasta sannfæring, að íslendingar, sem hingað vestur flytj-
ast, eigi að varast að gefa sig í þetta kirkjufélag. Páll Þor-
láksson hefir alt aðra skoðun á þessu en ég, því hann unir
svo einstaklega vel hinum fornlúterska bókstafsrembingi klerk-
anna norsku. Við höfum verið að rífast bréflega í allan vet-
ur, en afleiðingin verður eflaust ekki önnur en sú, að hvor
situr við sinn keip. Hann hefir nú einu sinni svo mikið traust
á þessum andlegu leiðtogum lýðsins í sýnódunni, að ég held