Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 226
212
M. Merk bók.
Pj'estaféUgsritiD.
drátlum, en sést minst af þeirri efnismergð. sem bók þessi geymir. En
ég hefi rakið efnið, ef það gæti vakið löngun hja einhverjum til þess að
fá sér þessa ágætu bók og lesa hana. Þess má gæta, að hér er ekki að-
eins kirkjusaga landsins rituð á íslenzku í fyrsta sinn, heldur ev hév lang
ýtavlegasta íslandssöguágvipið sem vév eigum, og sérstaklega síðara bindiö
geymir fjölmargan fróðleik, sem alls ekki er annarsstaðar kostur að fá
í prentuöum bókum, sízt af öllu dreginn svo saman á einn stað, að menn
hafi alment nokkur föng á að afla sér hans eða hagnýta fyrir sig.
Bókin hlýtur því að verða stórum vinsæl, og sannast að segja er ég
undrandi, að upplagið, sem kvað vera mjög lítið og alt of lítið, skuli
ekki vera þrotið nú þegar. Eg er hræddur um að það standi í sambandi
við einhvern misskilning, svo sem þann, að „Kristnisaga Islands" muni
vera eitthvað sem aðeins sé fyrir presta og aðra guðfræðinga, í staö
þess, að þessi þáttur sögu vorrar er í raun og veru svo stór, að heita
má fullkomin saga landsins.
Eg vil því um leið og ég enda þessa bókarfregn með þakklæti til
biskups fyrir alla þá feikna vinnu, sem hann hefir lagt í það, að gefa
þjóð sinni þessa kirkjusögu, ráðleggja öllum fróðleiksfúsum mönnum að
panta sér þessa bók hjá höfundi hennar, og gera það sem fljótast, því
að það er áreiðanlegt, að færri fá en vilja, og bók þessi verður fljótt
„ófáanleg“. Magnús Jónsson.
ERLENDAR BÆKUR
SENDAR TIL UMSAGNAR.
Norskar bækur.
Michelet, S., dr., prófessor: „Krisfendom og Rationalisme“. — Til
Opgjöv af Kvistendomssynet. — Oslo 1927 (Norlis Forlag).
Michelet prófessor mun vera „nestor" guðfræðideildar háskólans í
Osló. Hann er prófessor í gamla-testamentisfræðum og maður stórlærður
á því sviði. Með honum héldu hinar vísindalegu biblíurannsóknir innför
sína viö Oslóar-háskóla og hefir hann verið einn af aðaltalsmönnum
þeirrar stefnu þar í landi síðan. Hefir hann ritað fjöldann allan af rit-
gerðum um þau efni. Merkast rita hans er: „Gamlir helgidómar í nýju
ljósi", sem vakti á sínum tíma mikið umtal bæði með og móti. Þótt þar
væri stilt mjög í hóf með allar staðhæfingar, svo að ýmsum jafnvel þótti