Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 230
216
Erlendar bækur.
PrestafelagsritiO.
Sigurd Odland: „FortolUning av ]akobs, Peters, judas’ og jo-
hannes’ Brever". — Oslo 1927. — Lutherstiftelsens Forlag.
Þetta er mikið og ýtarlegt skýringarrit eins og sjá má af því, að það
er 254 mjög stórar síður, mest með smáu lefri.
Eins og vita má, fylgir Odland sfröngum lúferskum „rétttrúnaði" í
skýringum þessum, og má því oftast sagja fyrirfram, hvernig skýringar
helztu staða verða. Það vakti því nokkra undrun hjá mér, er ég sá, að
höf. heldur því hiklaust og eindregið fram, í skýring sinni á 1. Pét. 3,
19 nn., að afturhvarf eftir dauðann sé mögulegt, eftir kenning biblíunnar.
Bréf þessi telur höf. öll vera eftir þá, sem erfikenningin hefir eignað
þau, einnig 2. Pétursbréf, sem veikustum fótum stendur allra rifa Nýja-
testamentisins. En hann styðst meðal annars við hina frægu röksemd
Rördams Sjálandsbiskups, að „bréf þetta tali með svo miklum postul-
Iegum myndugleika og öryggi, að það lyfti því hátt yfir alt það, sem vér
þekkjum frá tímanum eftir postulatímann, og því sé ekki hægt að efast
um að það sé eftir postulann Pétur". Sælir eru þeir, sem ekki þurfa
sterkari rök en þessi.
Utgáfan er prýðilega vönduð og bókin er skýrt og skipulega rifuð og
ber vott um víðlesinn og duglegan vísindamann, eftir því sem hægt er að
tala um „vísindi", þar sem skoðanir höf. eru fyrirfram meira og minna
bundnar. M. J.
Ennfremur hafa Prestafélagsritinu verið sendar þessar bækur frá Noregi:
Ivar Mortensson-Egnund: Draumkvedet. / ny uppsetjing. Mcd ut-
greidingar. — Oslo. — Commermeyers boghandel. 1927.
Og 7 rit gefin út af Lutherstiftelsens Forlag:
Pastor Sv. Norberg: Pá forklarelsens bjerg. — Sjö prédikanir. —
Oslo 1927. — 176 bls. — Verð kr. 4,00 norskar ób., 6,25 ib.
Dr. O. Hallesby: Temperamenterne i kristelig lys. — Oslo
1927. — 125 bls.
Dr. O. Hallesby: Fra bönnens verden. Et ord til trætte bedere. J-
Oslo 1927. — 217 bls.
Livets verdier. Av höiesteretsadvokat Sigurd Halbo. Med forord av
professor dr. Olav Moe. — Oslo 1927. — 64 bls. — Verð 1 kr. norsk.
Pasfor Peder Dreyer: De unges raadgiver. — Oslo 1927. — Verð
kr. 1,85 n.
Hverdagskristendom. Foredrag holdt pá Nordisk Student- og
Gymnasiastmöte i Karlskoga sommeren 1927, av Hans Höeg. — Oslo
1928. — 19 bls. — Verð kr. 0,30 n.
Ralph Connor: Feltpresten. Pá norsk ved ]ohann Hilland. — Oslo
1927.