Andvari - 01.01.1973, Side 75
ANDVAHI
ÁTRÚNAÐllR JÓNASAR OG RJARNA
73
mic5i, virðist hver þeirra hafa lifað í ólíkum heimi, einkum Bjarni og Grímur.
Jónas er meira á tímamótum og getur því frekar rétt hendi til hvors hinna.
Rétt er að benda á, að Bjarni fæddist árið 1786, en Grímur andaðist ekki fyrr
en 1896.
Á tímaskeiði fyrrnefndra skálda komu margs konar andleg grös til sögunnar
hérlendis. Nefna má Mynstershugleiðingar, Árnapostillu, Pétursliugleiðingar
og loks rit þýzku nýguðfræðinganna. Ef trúarhugmyndir Bjarna, Jónasar og
Gríms reynast þó við nána athugun vera þær sömu í meginatriðum, má það
teljast alllvel rökstutt, að grundvöllur kristinnar kirkju sé jafnan hinn sami
og trúarlíf safnaðanna af líkurn toga spunnið, hvað sem deilum guðfræðing-
anna líður, eða þrátt fyrir þær. Og trúi Bjarni Thorarensen svipuðu á dögum
hugsvifastefnunnar við endalok upplýsingarinnar og Grímur Thomsen á sigur-
dögum Darwins og í upphafi raunsæisstefnunnar, bendir það sterklega til þess,
að trú og vísindi hafi ekki tortímandi áhrif hvort á annað, en geti staðizt hlið
við hlið og beint og óbeint eflt hvort annað.
Ég sný mér nú að trúarhugmyndum Bjarna og Jónasar. Rúmsins vegna
verður Grímur að sitja á hakanum.
Og eitt er sérstaklega nauðsvnlegt að hafa vel í huga.
Það, sem hér fer á eftir, er útdráttur úr miklu lengra máli, þar sem efnið
er miklu nánar rakið og stutt langtum fleiri dæmum.
Hér er fyrst rætt um trúarskoðanir Bjarna Thorarensens og þá talið full-
víst, að lesendum séu kunn æviatriði hans. En nánar verður að geta þess andrúms-
lofts, sem um hann lék.
Bjarni Thorarensen var alinn upp á þeim tímum, er Magnús Stephen-
sen stritaðist rnest við að bera ljós upplýsingarinnar í bæinn hérlendis. Lind
hennar kom upp á Englandi í heimspekitúni þeirra Locke og Elobbes. Síðar
varð hún að stríðri elfi vegna þeirra kvísla, er franski heimspekingurinn Voltaire
og alfræðingarnir Diderot og hans sálufélagar veittu í hana. En mest varð flóð
hennar eftir að hún hafði flætt til Þýzkalands og verið mögnuð af Leibnitz,
Thomasiusi og Wolff. Þaðan rann hún til Norðurlanda.......
Það var ætlun upphafs- og forvígismanna þessarar stefnu, að ljós skyn-
seminnar og raunvísindanna, sem hún má kallast rnóðir að, skyldi upplýsa al-
menning um alla skapaða hluti, svo að honum kæmi lífið að sem mestum og
heztum notum. Mcnn höfðu óbilandi trú á, að skynseminni væri unnt að leysa
allar gátur, og langmest væri vert um þau hyggindi, sem í hag koma.
Viðhorfin til kirkju og kristni voru mjög með tvennum hætti. Á öðru
leitinu voru hinir svonefndu „deistar". þeir héldu trúnni á Guð sem skaparann.
Þó höfnuðu þeir öllu yfirnáttúrlegu og mótmæltu allri opinberun, en lögðu