Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1973, Side 112

Andvari - 01.01.1973, Side 112
110 ÞORSTEINN SÆMUNDSSON ANDVAIU öðru skipulagi en menn höfðu álitið í meira en þúsund ár, allt frá dögum gríska stjörnufræðingsins Ptólemæusar. Kládíus Ptólcmæus, stærðfræðingur og stjörnufræðingur, sem uppi var í Alexandríu á 2. öld e. Kr., hefur oft verið kallaður síðasti stjörnufræðingur fornaldar; hann var án efa einhver mesti stjörnul ræðingur, sem uppi hefur verið. Hið mikla rit hans, Ide mathematike syntaxis, var varðveitt af arabiskum fræðimönnum, sem gáfu því heitið Almagest — hinn mesti, þ. e. meistaraverkið. Á 12. öld var ritið þýtt á latínu, og varð það til þess, að fræðimenn í Evrópu kynntust efni þess. Ptólemæus hyggði á þcim grunni, sem vísindamenn Grikkja höfðu öld- urn saman unnið við að leggja, en studdist jafnframt við eigin athuganir. Grundvallarkenningar Ptólemæusar voru þessar: 1. Eliminninn hefur hnatt- lcgun og snýst eins og hnöttur. 2. Jörðin hefur hnattlögun. 3. Jörðin er í miðju alheimsins. 4. Jörðin er að stærð til eins og depill samanhorið við stjörnu- himininn. 5. Jörðin er hreyfingarlaus. Með öðrum orðum: í heimsmynd Ptólemæusar sat jarðkúlan í kerfinu miðju, föst og óhitanleg. Lltan um hana var hnattlaga himinhvelfing, sem fasta- stjörnurnar sátu á, og þessi hvelfing snerist um jörðina frá austri til vesturs einu sinni á sólarhring, eða réttara sagt einu sinni á stjörnuhring, sem er örlítið skemmri tími. Auk fastastjarnanna, sem alltaf höfðu sömu afstöðu hver til annarrar, þekktu mcnn sjö himintungl, sem höfðu meira eða minna óreglu- lega hreyfingu: sólina, mánann, Venus, Merkúríus, Mars, Júpíter og Satúrnus. Til þess að skýra hreyfingar þessara reikistjarna, sem svo voru kallaðar einu nafni, var gengið út frá því, að hver reikistjarna sæti á gegnsærri kristalskúlu, sem snerist eins og stjörnuhvelfingin um jörðina. Nú var hins vegar augljóst, að reikistjörnurnar gengu ekki einfaldlega í hring í kringum jörðina; breytileg birta sumra þeirra gaf t. d. til kynna, að þær væru ýmist að fjarlægjast eða nálgast jörðina, auk þess sem ýmsar aðrar óreglur virtust vera á hreyfingum þeirra. Til þess að skýra þetta var gert ráð fyrir, að hver reikistjarna gengi eftir eins konar aukahring um punkt á kristals- kúlunni, en sá punktur færi síðan í annan lning, sem kalla mætti aðalhring, um jörðina. Reynslan sýndi, að jafnvel þetta var ekki nægilegt og að hæta þurfti við fleiri hringhreyfingum. Kúlan og hringurinn vom hin stærðfræðilega fullkomnu form, og þess vegna var talið sjálfsagt, að allar hreyfingar í himin- geimnum væru hringhreyfingar. Ptólemæus sýndi mikla snilli við að leysa þessa erfiðu þraut. Hann lét hverja reikistjörnu ganga eftir hring. Miðja þess hrings gekk svo í annan hring, og miðja þess hrings loks eftir aðalhringnum um jörðina. En jafnvel með
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.