Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1973, Side 149

Andvari - 01.01.1973, Side 149
ANDVAIU HUGUR OG IIEIMUIl GUÐMUNDAR FINNBOGASONAR 147 fræðina notum vér til að vinna úr þessum upplýsingum. Rökfræðin segir oss ekkert a priori um veruleikann. Þar af leiðir, að allir „veruleikar í sjálfum scr“ eru jafnlíklegir, eigi einhver slíkur að vera til. Vér höfum enga ástæðu til að ætla, að einn taki öðrum fram. Immanúel Kant taldi, að slíkur veru- leiki væri til, en vér gætum aldrei öðlazt neina vitneskju um hann. Mér virðist merkingarleysa og lánýti að ræða um þennan veruleika. Þess má geta, að díalektískir efnishyggjumenn halda því fram, að heimurinn, sem vér skynj- um, sé heimurinn í sjálfum sér. Þeir telja, að reynslan hafi sýnt það á óyggj- andi hátt. Þetta er auðvitað firra, því að þá hlyti að hafa merkingu að segja, að heimurinn, sem vér skynjum, sé ekki hcimurinn í sjálfum sér, en það hefur í för með sér mótsagnir, eins og vér sáum. Guðmundur skilgreinir náttúruvísindin sem „samansafn þeirrar reynslu, sem talið er, að allir menn geti öðlazt, ef þeir fara svo og svo að, ef þeim og þeim skilyrðum er fullnægt“ (150. bls.). Á sömu síðu: „Þau (þ. e. náttúruvísindin) taka ekki tillit til þess, sem ekki er sameiginlegt í reynslu manna." Á þennan skoðunarhátt er auðvelt að fallast, en erfitt að vera ósammála. Spíritistar gætu þó aldrei viðurkennt þetta, því að engir „skynja“ vofurnar á skyggnilýsingar- fundum nema miðlarnir. Ég vil gera smáathugasemd á eðlisfræðilegum for- sendum og vitna til þess, er áður hefur verið sagt um skammtaeðlisfræði. Sömu skilyrði gefa ekki ætíð sömu niðurstöður, heldur einungis sömu lík- indi fyrir mismunandi atburðum. I framhaldi af þessu skilgreinir höfundur sannleik: „Sannindi köllum vér þær ávísanir á tilveruna, sem hún greiðir oss affallalaust“ (152. bls.). Á 153. bls. kemst Guðmundur í mótsögn við sjálfan sig, þar sem hann segir, að stærðfræðileg sannindi megi fá greidd í reynslunni. Það er ekki rétt. Ef svo væri, væri stærðfræði raunvísindi. Framar í bókinni er Guðmundur einmitt búinn að segja, að stærðfræði sé frjáls sköpun hugans. Ég geri ráð fyrir, að Guðmundur eigi við, að náttúrulögmál í stærðfræðibúningi séu avísanir, sem má fá greiddar í tilverunni. 1 lok kaflans víkur höfundur að þeim sannindum, er gilda ekki jafnt fyrir alla menn. Hafi ég einhverja skoðun og komi hún heim við tilveruna i einu og öllu frá mínu sjónarmiði, get ég leyft mér að kalla hana sannindi. Þyki mér t. d. rjómaís góður, breytir engu, þótt einhverjum öðrum finnist hann vondur. 1 stuttu máli: „. . . . hver sú ávísun er góð og gild, sem handhafi fær greidda affallalaust" (154. bls.). 10. kafli ber yfirskriftina Sameign og séreign í tilverunni. Heimurinn greinist í tvennt. Annars vegar er hinn sameiginlegi rúmheimur allra manna. Hins vegar er hugarheimur hvers einstaklings, sem hann einn liefur aðgang
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.