Andvari - 01.01.1973, Page 181
ANDVARI
BRÉF TIL FINNS MAGNÚSSONAR
179
að innihaldi, ef kostur gæfist. Vildi eg því
biðja yður svo vel gjöra að gefa mér vís-
bendingu þar um mcð fyrstu hcntugleik-
um. Sömuleiðis um það, bvort eignast
vilduð ævisögu síra 'Hallgríms skálds Pét-
urssonar, bverja eg á fullkomnari en þá
framan við Hallgrímskver prentuðu, með
fáeinum marginalier Dr. Finns biskups,
en höfundinn veit eg ekki. Um það eg
á af sundurlausum kveðlingum cftir síra
Jón Þorláksson hefi eg áður spurt, hvort
eignast vilduð, en yður gleymzt að svara
því.
Þar ekkert skeyti hefi enn nú fengið
frá Fornfræðafélaginu, hugsa eg nú ei til
þcss framar, þar subscribentar þeir eg
fengið hafði þóttust gabbaðir af mér,
sögðu þeir mér upp um loforð sín og hafa
keypt Ólafs sögu annarsstaðar.
Fátt skeður undarlegra nú um stund-
ir fyrir mínum skilningi en að brokkur-
inn Ásgrímur prestur á Laugarbrekku
skuli hafa sigri að brósa. Hefði hæsti-
réttur þekkt hann eins vel og Hellna-
menn, trúi eg naumast, að sök hans hefði
haft eins lukkulegt útfall.
Eftir mjög affaraslæman vetur varð
fellir á málnytju peningi víða, ýmist meiri
eða minni, vorið mjög úrfella- og stór-
rigningasamt og sumarið fram að slætti,
síðan oftast hagstæð heyjanýting og gras-
vöxtur víða góður hér um sveitir. Kvilla-
samt lengi af stríðum hósta, og hafa börn
úr honum nokkur dáið víða. Amtmaður
t'or er nú bráðum væntanlegur hér um
slóðir, og um skammt þar á eftir biskup
vor visitando.
Að eg nú ekki þreyti yður lengur með
óþarfa fréttum, þar líklega fáið þær jniklu
nægari frá Suðurlandinu t n eg gæti
skrifað, enda eg seðilinn í flughasti mikl-
um með hvers kyns velfarnanar óskum
frá konu minni og mér yður og yðar til
handa, og vil með ánægju finnast
yðar þénustuskyldugur vinur
Hallgrímur Jónsson.
■marginalier, spássíugreinar. - subscribentar,
áskrifendur. - visitando, til að vísitera.
Sveinsstöðum þann 21ta sept. 1827.
Háttvirti herra prófessor!
Yðar háttvirta elskulega tilskrif á sumri
þessu meðtekið með kaupmanni Símon-
sen, og því samfara 3 bæklinga yðar,
þakka eg innilega skyldugast, sömuleiðis
yðar góðu umsýslanir og framkvæmdar-
sömu aðgjörð fyrir mína hönd við Bók-
menntafélagið, hvcrjar að höfðu þá verk-
un, eftir því þér vænizt í yðar háttvirta
bréfi, að félagið sendi mér nú í sumar
gefins eitt exemplar á skrifpappír af öll-
um fþess forlagsbókum (að 6. deild Ár-
bókanna undantekinni) samt 5 bindi
félagsritanna. En óheppni mín var það, að
mistekizt hefir til Jjeirra, því 4 þeirra,
nl. 6., 8., 9. og 11. átti eg áður, en 15.
bindið átti eg ekki fyrri. 1. og 2. bindið
fékk eg nærlendis, en nú vantar mig enn
átta, nl. 3., 4., 5., 7., 10., 12., 13. og 14.
Þér gefið mér bendingu um að nefna
eina eður aðra bók, er eg vildi af yður
tilmælast, en 1) get eg engan pésa for-
þénað með því að senda yður neitt, sem
neinu verði nemur og borgunar krafizt
gæti, 2) veit eg ekki, hvers biðja ber, því
þegar mér verður að líta í Hjálmarsens
Leiðarvísir til að velja nauðsjmlegustu
guðfræðibækur (en þær eru samt það eg