Prestafélagsritið - 01.01.1928, Page 42
Prestafélagsritið.
Rannsóknirnar um æfi ]esú.
37
lærisveinanna, frelsari mannanna, konungur krisfninnar, sem
mennirnir snúa sér til. Alt sögulegt er óvíst, og það væri
óvitið mesta, að vilja reisa trú sína á því. Sókrates sá, sem
lifði í Plató og öðrum lærisveinum sínum, er sá virkilegi
Sókrates. Kristur, sem lifir í lærisveinunum og ávalt síðan í
kristninni, hann er sá sanni Kristur.
Engum þessara manna datt í hug að efast um, að vér ætt-
um sannar sögur af Jesú í guðspjöllunum, þó að þeir teldi
ómögulegt, að koma þeim saman í »æfisögu«. En nú dynur
skyndilega yfir einhver sú harðasta hríð, sem orðið hefir á
þessum vettvangi.
Forgöngumann í þessu áhlaupi má nefna Englendinginn
]. M. Robertson. Hann gaf út margar bækur og leitaðist þar
við að sanna, að Jesús hefði aldrei lifað og kristindómurinn
væri settur saman úr ýmsu efni, frá launhelgum, fornum guðs-
dýrkunarsiðum, skáldskap o. fl. Robertson taldi guðfræðingana
ósamkvæma sjálfum sér, þegar þeir höfnuðu einstökum krafta-
verkum, en héldi Kristi, sem væri miklu ótrúlegri en öll
kraftaverkin til samans. Þess konar hálfvelgja dygði ekki,
enda stafaði þetta aðeins af vanafestu og hugleysi. Jesús væri
fóstur goðsagnanna og annað ekki.
Bók Robertsons vakti að vonum mikla athygli og andstöðu.
En hann var ekki lengi einn um þessa hitu. Amerískur fræði-
maður, W. B. Smith kom bráðlega með svipaðar kenningar.
Hann taldi þó ekki mögulegt, að sagan um Jesú væri til
orðin úr brotum einum, hingað og þangað að, heldur gat
hann þess til, að einskonar »Jesúdýrkun« hefði verið til áður
en kristindómurinn myndaðist. Hingað til, sagði hann, hafa
menn haldið, að kristindómurinn hafi orðið til við það, að
maðurinn Jesús var gerður að guði, en hitt mun vera réttara,
að guðinn Jesús hafi verið gerður að manni, og utan um
hann hafi svo spunnist sögur þær, sem mynda uppistöðuna í
kristindómnum. Smith fanst jafn ósennilegt, að lærisveinarnir
hefðu farið að tilbiðja mann, sem þeir höfðu verið með, eins
03 þeir hefðu tekið sig saman um það að reyna að gleypa
sólina. Merki þessarar Jesúdýrkunar fann Smith fá og óljós.