Prestafélagsritið - 01.01.1928, Page 48
•Prestaíélagsritið.
PRÓFESSOR
HARALDUR NÍELSSON
Minningarorð.
Eftir Sígurð P. Sívertsen.
Þótt Prestafélagsritinu væri allra rita skyldast að flytja
Ýtarlega æfisögu Haralds prófessors, er þess þó ekki kostur.
Verður það að láta sér nægja að drepa á það helzta, sem
kirkja vor og þjóð á séra Haraldi að þakka, jafnframt því
að ritið flytur mynd af honum og síðustu prédikun hans.
^argt hefir þegar verið um hann ritað, bæði í blöðum og
hmaritum, t. d. í »Morgni«, þar sem alt er flutt, sem talað
yar við jarðarför hans og við minningarsamkomu um hann,
°- fl. Verður að vísa til þeirra ræða og ritgjörða um alt það,
sem þessi minningarorð ekki ná til.
Fyrsta aðalverk séra Haralds var biblíuþýðingin nýja. Geta
menn bezt gjört sér í hugarlund, hvert stórvirki og vandaverk
t*ar hafi verið af hendi leyst, með því að kynnast lítið eitt
soSU biblíuendurskoðunarinnar, starfsaðferðum og meginregl-
nni þeim, sem farið var eftir.
A fundi hins íslenzka Biblíufélags 1887 var gjörð sú á-
kvörðun, að hefja endurskoðun Biblíunnar svo fljótt sem því
Vrði við komið. Var stjórn félagsins gefin heimild til að láta
VHa á endurskoðunarverkinu, þegar hún sæi sér það fært.
En svo liðu 10 ár að ekki var frekara aðgert; olli því eink-
nni það, að félagið átti ekki kost á neinum manni, er vel
Þætti til verksins fallinn. — Vorið 1897 kom Haraldur Nr