Prestafélagsritið - 01.01.1928, Side 53
48
Sigurður P. Sívertsen:
Prestafélagsritið.
áður en félagið fær mann eða menn til að Ijúka við þýðingu
þessa og sér sér fært að kosta útgáfu hennar. Þeir sem nú
vilja lesa rit þessi, eiga ekki kost á að kynnast þeim í íslenzkri
útgáfu sem yngri sé en Viðeyjar-útgáfan frá 1841.—
Annað aðalstarf séra Haralds var guðfræðikensla hans,
fyrst við Prestaskólann frá 1908 og síðan við guðfræðideild
Háskólans frá stofnun hans 1911. Það starf var honum mjög
hugleikið og að því gekk hann með þeim áhuga og vand-
virkni og samvizkusemi, sem einkendi alt líf hans. Enda var
kenslu hans viðbrugðið af nemendum hans. Fundu þeir, að
þar fóru saman frábærir kennarahæfileikar, mikill lærdómur
og brennandi sannleiksást. Sýna ummæli þeirra bezt, hvert
dálæti þeir höfðu á honum sem kennara sínum, og hve sárt
þeir hafa saknað hans.
Kenslugreinar hans voru gamlatestamentisfræðin og skýring
Nýja-testamentisins.
Til notkunar við kenslu sína í gamtestamentisfræðum samdi
séra Haraldur tvö rit, annað var trúarsaga ísraels, en hitt inn-
gangsfræði Gamla-testamentisins. Þótti lærisveinum hans mikið
til þessara fyrirlestra hans koma og hefði mörgum þótt fengur
í að þeir kæmu á prent. En sjálfum þótti honum ekki nógu
vel frá þeim gengið og var ófáanlegur til að gefa þá út fyr
en hann gæti vandað þá betur, aukið þá og endurbætt. Var
hann byrjaður á að semja inngangsfræðina að nýju til prent-
unar, en entist ekki tími til þess frá öðrum störfum, sem
kölluðu að. Verða menn því að láta sér nægja handrit þau,
sem til eru af þessum fyrirlestrum hans, og er eiginhandarrit
hans af þeim nú orðin eign Landsbókasafnsins.
Um kenslu hans í gamlatestamentisfræðum farast einum af
lærisveinum hans þannig orð: »Séra Haraldur hreif mig fyrst
með því, hvernig hann kendi okkur um spámenn Gamla-
testamentisins — fyrirrennara Krists, hina innblásnu menn,
sem vildu vekja þjóð sína frá bókstafstrú, sem fórnuðu lífi
íyrir sannfæringu sína.
Hann komst í hrifningu sjálfur, er hann útlistaði hina geysi-
lega miklu þróun í guðshugmyndunum, sem þeir opinberuðu,