Prestafélagsritið - 01.01.1928, Síða 69
64 Kjartan Helgason: Presuféiagsritið.
En þá gerist annar atburður, sem ekki olli minni æsingu
á Indlandi.
Þar í landi er mikill fjöldi Múhamedstrúarmanna. Þegar
ófriðurinn mikli hófst, voru þeir í vanda staddir og milli steins
og sleggju. Annars vegar voru þeir þegnar brezka ríkisins,
en hins vegar þegnar Tyrkjasoldáns, því að hann var yfir-
maður eða kalífi allra Múhamedsmanna. Nú stóðu Bretar og
Tyrkir á öndverðum meið í ófriðnum. En Englendingar gátu
unnið sér fylgi Múhamedsmanna á Indlandi með fögrum lof-
orðum. Þeir lofuðu því, að ekki skyldi verða þröngvað kosti
Tyrkjasoldáns, né skert vald hans og yfirráð yfir þeim helgu
borgum í Arabíu, sem öllum Múhamedsmönnum er annast
um. Þetta var fastmælum bundið í upphafi ófriðarins, og
ýmislegt fleira Múhamedsmönnum í vil. Við friðarsamningana
eftir stríðslokin voru öll þessi loforð svikin. Og þegar það
vitnaðist sumarið 1919, urðu Múhamedsmenn á Indlandi óðir
og uppvægir. Þeir eru ekki líkt því eins friðsamir menn og
hinir, sem fylgja Brahmatrú og Hindúatrú. Nú komust þeir
hreint og beint í vígahug, og voru til alls búnir. Þeir kvöddu
þing saman. Gandhi var boðið að mæta á þingi þeirra, og
meira að segja var honum falið að vera forseti þess. Þar er
talið eitt af mestu snildarverkum Gandhis, að honum tókst þá
að sefa vígahug Múhamedsmanna og hefnigirni. Eftir langar
fortölur fékk hann þá á sitt mál. Þeir gerðu fullkomið banda-
lag við aðra heimastjórnarmenn á Indlandi, samþykíu starfs-
aðferð Gandhis og fylgdu honum síðan.
Þegar hér var komið, var svo að sjá sem Englendingar
opnuðu augun. Nú sáu þeir, að einhver alvara var á ferðum
þar eystra. Og þá tóku þeir að semja og bjóða réttarbætur.
Enska stjórnin gaf út boðskap um stjórnarfarsbreytingu á
Indlandi. Landsbúar skyldu fá nokkru meiri íhlutun um lands-
stjórn, og slíkt hið sama um héraðsstjórn og sveitastjórn.
Englakonungur staðfesti þessa ráðstöfun, og sendir um leið
bréf til Indverja — í jólagjöf 1919. Hann býður Indverjum
til samvinnu, og biður jarl sinn að sýna þeim mildi, og gefa
upp sakir öllum þeim, sem sátu í fangelsi fyrir stjórnmála-erjur.