Prestafélagsritið - 01.01.1928, Qupperneq 91
86
Sigurður P. Sívertsen:
PrestaFélagsritiö.
Þá er stjórnarnefnd kirkjunnar, „Svenska Kyrkans Diakoni-
styrelse“. Var stjórnarnefnd sú stofnuð 1910 og eiga í henni
sæti 7 menn kosnir af kirkjuþingi, ásamt 4 varamönnum. Er
erkibiskup formaður nefndarinnar, en hinir bæði andlegrar
stéttar menn og leikmenn. Er verksvið nefndar þessarar að
vera í samvinnu við presta og leikmenn úti um land alt um
alt það, er efla má og auka starfsemi kirkjunnar og hjálpa
henni til að ná til þjóðarinnar. Stendur nefnd þessi fyrir
mikilli bókaútgáfu, og starfar að fyrirlestrarhaldi og kirkju-
legum fundarhöldum, styður ungmennastarfsemi, líknarstarf-
semi, kristileg afskifti af atvinnumálum o. fl. o. fl. Eru undir-
nefndir, sem skifta með sér verkum, og hafa marga menn
sinni þjónustu. Er öll þessi starfsemi afarvíðtæk og mikilsverð
fyrir kirkjuna, þar eð hún bæði beinist að kristilegri fræðslu
og kristilegri vakningu og að útgáfu rita, og margvíslegri
verklegri hjálparstarfsemi. Leikmannaskóli sænsku kirkjunnar
á meðal annars upptök sín frá stjórnarnefnd þessari. Er skóli
sá stofnaður 1922 og hefir síðan 1924 aðsetur í bænum Sig-
tuna, skamt frá Sigtunaskólanum alþekta. Er markmið skóla
þessa að menta leikmenn til aðstoðar prestunum í söfnuðun-
um, — sumpart menn, sem hafa aðra stöðu en kirkjulega,
en vilja taka þátt í kirkjulegri starfsemi í frítímum sínum, en
sumpart menn, er taka vilja að sér að verða kirkjulegir leik-
prédikarar þar sem strjálbýli er mest og erfiðast um prests-
þjónustu. Þykir skóli þessi merkilegur að mörgu leyti, meðal
annars vegna þess, að þar sem >Sv. Kyrk. Diakonistyr.* stendur
að skóla þessum hefir leikmanna prédikun með þessu fengið
kirkjulega viðurkenningu, en áður var kirkjan mótfallin leik-
mannaprédikun, svo að hún átti sér ekki stað, nema í and-
stöðu við kirkjuna.
Af þessu, sem talið hefir verið, sést, hve öflug stjórn
sænsku kirkjunnar er og hve víðtæka starfsemi hún hefir í
höndum sér.
En auk þessa er margvísleg frjáls starfsemi innan sænsku
kirkjunnar, bæði til áhrifa innan kirkjunnar sjálfrar og til trú-
boðs út á við eða styrktar trúbræðrum í öðrum löndum. Er