Prestafélagsritið - 01.01.1928, Page 233
Prestafélagsritiö.
Erlendar bæl<ur.
219
Danskar bækur.
Ostenfeld, H., dr., Sjálandsbiskup: „Fra Dagens Arbejde". Spövgs-
maal jeg mödte paa min Vej, og Forsög paa at ndrede dem. — Kliavn
1927 (Aschehoug).
Sjálandsbiskup hefir ekki gefið sig mikið að ritslörfum um dagana,
lil þess hefir raunhæfa lífið ált of mikil ítök í honum. En alt, sem frá
penna hans hefir komið, ber vott um auðugan anda og djúphyggjumann,
með sérstaklega opin augun fyrir meinum mannlegs félagslífs og umbófa-
þörfinni á því sviði. Þannig kemur hann þá Iíka fyrir sjónir í rifi því,
sem hér ræðir um, sem hann nefnir „Fra Dagens Arbejde". Eru það
álta erindi, sem biskupinn hefir flutt við ýms tækifæri. Vfirskriftirnar
gefa hugmynd um efni þeirra: „Sannleikurinn er persóna", „Verði þinn
vilji", „Slarf og bæn“, „Gil, sem áreiðanlega skilja að, og gil, sem þarf
að brúa“, „Trúarsetningar og játning", „Þróun kristindómslífsins" o. s.
frv. Sérstaklega er erindið „Trúarsetningar og játning“ mjög athyglisverð
fyrir þá, sem hafa hvorttveggja þetta á hornum sér, en slíka menn er
ekki síður að finna hér en annarsstaðar. Rit þetfa er hið eigulegasta og
verðskuldar, að því sé gaumur gefinn. Verðið er 5 kr.
L. J. Koch: „Fortolkning til Paulus andet Brev til Ko-
rinthierne“. Anden gennemsete og forögede Udgave. — Köbenhavn
1927 (Frimodt).
Höf., sem er prestur við „ Diakonissestiftelsen" í Khöfn, hefir um
mörg ár verið prófdómari við embættispróf í guðfræði í Kaupmanna-
hafnar-háskóla, en í þá stöðu eru valdir úrvalsmenn einir. Hann er þá
líka að góðu einu kunnur sem guðfræðingur, enda ber þessi skýring
hans yfir síðara Korintubréf (sem hér birlist í annari útgáfu) vott um
mikla þekkingu höfundarins og þá ekki síður ágæta hæfileika til þess að
skýra biblíurit. Síðara Korintubréfið er víða nokkuð þungskilið, en höf.
tekst óvenjuvel að greiða úr einatt ærið flóknu efni. Sjálf skýringin er
undir það 300 bls. og mundi það þykja fulllangt að nota slíka skýring
við háskóla vorn, jafn sluftur og námstíminn er, þó mikillega væri þess
óskandi, að skýringar ]oh. Weiss’ og Böusset’s, sem þar hafa nú verið
notaðar um hálfan mannsaldur, fengju að þoka fyrir öðrum jákvæðari
skýringum. En fyrir framan skýringuna er mjög ítarlegur inngangur, er
gerir ágætlega grein fyrir tilorðningu bréfsins og kringumstæðum postul-
ans á því skeiði æfi hans, þegar bréfið er samið. Ber það alt vott um
óvenjumikinn lærdóm höfundarins. Vfir höfuð að tala er skýring þessi
höfundi hennar til mikils sóma og sönn prýði fyrir guðfræðilegan bók-
mentaheim Dana.