Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1939, Blaðsíða 11
9
þíns. Þú skalt ekki girnast eiginkonu náunga þíns, ekki þrœl
hans eða ambátt, ekki uxa hans eða asna, né nokkuð það,
er náungi þinn á.“
Eins og menn sjá, ern flesl þessara boðorða neikvæð nema
tvö. Þau vara oss við glæpunum, sem að vísu er góðra gjalda
vert, en segja oss ekki, nema þá að mjög litlu leyti, livernig
oss beri að liugsa og brevta. Það kemur fvrst í ljós bjá spá-
mönnunum, eða þó öllu heldur i siðakenningum Jesú Ivrists,
en hann leggur, eins og kunnugt er, megináherzluna á hjarta-
lagið og hugarfarið, á liið innra siðgæði með manninum, en
miklu síður á siðareglurnar um liina vtri breytni manna,
nema þá sem „ávöxt“ hins innra manns. Hér er aftur á móti
um ytri siðvendni að ræða, og það, hvað menn megi
ekki gera. Lögmálið allt er svo að segja eitt samanhangandi
net boðs og banns; bannið nær aðallega til þess, sem menn
mega ekki gera, en boðin til fórna og helgihalds. Því stingur
mjög í stúf, er hinn fyrsti spámannanna segir: Miskunnsemi
þrái ég, en ekki fórnir! og þó enn meir í fjallræðunni, þar sem
Kristur hefur upp boðorðin livert af öðru og gefur þeim sitt
jákvæða, siðferðilega innihald.
6. Fjallræðan. 1 Matt. 5. kap., 17. v. og síðar segir svo:
„Ætlið ekki, að ég sé kominn til að niðurbrjóta lögmálið
og spámennina; ég er ekki kominn til þess að niðurbrjóta,
heklur til þess að uppfvlla . . .
Þér hafið Iieyrt, að sagt var við forfeðurna: Þú skalt
ekki morðfremja ... en ég segi yður, að hver sem reið-
ist bróður sínum, verður sekur fvrir dóminum . . • Vertu
skjótur til sætta við mótstöðumanninn, meðan þú ert á veg-
inum með honum . . .
Þér hafið heyrt, að sagt var: Þú skalt ekki drýgja
hór; en ég' segi, að hver sem lítur konu með girndarhug,
hefir þegar drýgt hór með henni í hjarta sínu .. .
Enn hafið þér heyrt, að sagt var við forfeðurna: Þ ú s k a 11
ekki vinna rangan eið ... En ég segi yður: Þér eigið
alls ekki að sverja. En ræða yðar skal vera: já, já! nei, nei!
en það, sem er umfram þctta, er af hinu vonda . ..
Þér hafið heyrt, að sagt var: Auga fyrir auga og
tönn fvrir tönn. En ég segi vður: Þér skuluð ekki risa
gegn méingjörðamanninum; en slái einhver þig á hægri kinn
þína, þá snú þú hinni vinstri að honum . ..
Þér hafið heyrt, að sag't var: Þú skalt elska náunga
þinn og hata óvin þinn. En ég segi yður: Elskið óvini vðar
2