Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1939, Síða 64
62
í þessu sambandi? ÞaS, að maður treysti sér til þessa eða
hins og fvllist því hug og áræði til þess að gera það. Þar af
er orðið fullhugi. — Til er ákaflega merkileg, en þó einföld
sálfræðileg tilraun, sem enskur sálsýkisfræðingur, Haclfield
að nafni, hefir gert. Fvrst lét hann menn nokkra í völcu toga
á aflmæli, sem þeir frekast gátu, og drógu þeir að meðaltali
101 enskt pund með annarri liendi. Siðan dáleiddi hann þá
tvisvar. í fyrra sinnið sefjaði liann þá um, að þeir væru mjög
sterkir, og drógu þeir þá 142 pd. að meðaltali. En í seinna
sinnið taldi hann þeim trú um, að þeir væru bráðónýtir, og
drógu þeir þá ekki nema 29 pd. að meðaltali.1) I öllum sín-
um einfaldleik sýnir tilraun þessi, að sjálfstraust manna og
hugur getur aukið kraftana uni 40'% eða jafnvel meir; en að
vantraust manna á sjálfum sér getur rýrt þá um % eða jafn-
vel meir. En af þessu mættu menn læra, hversu mikils virði
sjálfstraustið og hugurinn er og Iive skakkt það er, eins og
menn þó einatt gera, að draga þor og kjark úr hörnum og
unglingum með því að hanna þeim þetta eða liitt og skapa
þeim alls konar grýlur. Með þessu eru menn oft með uppeld-
inu gerðir að hugleysingjum og gungum, þótt þeir, ef rétl
liefði verið á haldið, hefðu getað orðið hinir hugrökkustu og
jafnvel þorað að hjóða hættunum birginn.
Unglingum á vissu reki þykir beinlínis gaman að hættun-
um, gaman að hjóða þeim birginn. Það sýna meðal annars
svonefnd jakahlaup hér á tjörninni. Þá er ísinn leggur í smá-
flögum með landi, er oft hópur drengja að stökkva spöng
af spöng. Með tindrandi augum og ögrandi brosi treysta þeir
þá oft á fremsta lilunn. Ég veit, að lögreglunni og sumum
skólamönnum er illa við þetta og þá elcki síður mörgum for-
eldrunum, ef þau vissu nokkuð um það. En hér er enginn
liáski á ferðum, vatnið grunnt, menn allt í kring og bjarg-
hringur með stöng á næstu grösum, svo að vel mætti lofa
strákunum að iðka þetta stund og stund, því að þetta örvar
áræðið og viðleitnina til að bjarga sér. Og hver veit, nema
þetta geti bjargað þeim einlivern tíma síðar. Eða ætti að
banna mönnum að læra að synda af því, að þeir g e t a drukkn-
að í sjálfri sundlauginni? Nei, það ætti sannarlega að stappa
i unglinga stálinu, í stað þess að draga úr þeim kjarkinn.
Þá vrðu fleiri fullhugarnir, en færri hughlevðurnar.
Eins og áræðislevsi, beygur og kvíði geta dregið úr mönn-
1) Streeler: The Spirit (safnritj. Greinin: The Psychology of Power.