Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1924, Side 73

Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1924, Side 73
Úr sögu Garðs og Garðbúa 73 kom það, af því að íslenskir stúdentar áður á tíðum voru oftast nær eldri og betur þroskaðir líkamlega en þeir dönsku, og þoldu því betur vín og voru kraftameiri. Nú hygg jeg ekki sje orðinn neinn verulegur munur á þjóðunum hvað þetta snertir. Oft ömuðust danskir stúdentar yfir því, að íslenskir stúdentar fengu að heiman stækan og þefmikinn mat (hákarl, rikling og hangiket), sem þeir geymdu ( skápum sín- um; var þeim þá oft ómaklega brugðið um sóðaskap. Nú var að vísu satt, að auðvitað hefur það komið fyrir, að margur stúdentinn hefur hegðað sjer öðruvísi en hann átti og draslað, en sje litið á stúdentastjettina yfirleitt hygg eg ekki menn geti sagt með sanni, að íslendingar hafi misbrúkað Garðstyrkinn. Jeg tók mig einu sinni til að rannsaka Hafnarstúdenta frá árunum 1886 — 1900, sem eg hafði alla þekt persónulega, og gæta að því, hvernig farið hefði fyrir þeim, sem hjeðan fóru próflausir. Jeg fann þá að aðeins örfáir hötðu sfarið í hundanac, — allur þorrinn af þeim, sem svona höfðu farið hjeðan, orðið nýtir og góðir menn í þjóðtjelaginu, og sumir þeirra jafnvel komist í fremstu röð, orðið þjóðkunnir og dugandi menn. íslendingar hafa nú mist einkarjett sinn til Garðstyrksins 1918 og æðri mentun okkar verður framvegis ekki eins mótuð af andlegum straumum Danmerkur og Hafnarháskólans. En þvl mun enginn neita, að margt gott höfum við sótt þangað. Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson, Hannes Finnsson, Skúli fógeti, Jón Eiríksson, Fjölnismenn og Jón Sigurðsson, Hannes Hafstein, Gestur Pálsson — hvað eigum við ekki þessum gömlu Garðbúum að þakka! Sakamannatjelagið á 18 öld, stúdenta- fjelögin íslensku á 19 og 20. öld, skáldaklíkurnar og bókmenta- ijelögin í Höfn, alt þetta 'nafa verið sterkir og merkilegir þættir í menningu okkar. Og því er það að margir íslenskir menta- vinir geta sent og munu senda Garði hjartanlegustu heilla- óskir á afmæli sínu, og óska þess um leið, að altaf verði einhver íslenskur námsmaður við Hafnarháskóla talinn maklegur til að búa á Garði, og gangi þar í spor bestu samlanda sinna. (Aðalheimildarrit: C. E. F. Keinhardt: Kommunitetet og Regensen fra deres Stiftelse indtil vore Dage. Kbh. 1862. (Sjerprent úr Historisk Tidskrift, 3. Række 3. bd.). 2. (O. Andrup:) Gammelt og nyt fra Regensen. Kbh. 1911. — 3. Regensens Visebog. 1923. — 4. Rasmus Nielsen; Regensen: Erindringer fra 1858—62. Kbh. 1906. — 5. S. Skouboe: Sonner af den rode Gaard. Kbh. 1914. — 6. Knud Fabricius: Regensen gennem 100 Aar. Kbh. 1923. Sigfús Blöndal.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn
https://timarit.is/publication/249

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.