Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1924, Síða 147
Bókafregnir
■47
rýsir og daglegu lífi bæjarmanna og þeim goðum, grískum og
rómverskum, er þeir tilbáðu. Á húsveggjunum eru mörg
kalkmálverk og áletranir, er bera vitni um hugsunarhátt manna
og lifnaðarhætti; skýrir höfundurinn einnig frá þeim. Bókin er
góð og fróðleg fyrir alla þá, er vilja kynnast fornaldarlífi ítala.
Roger Nielsen, Amerika i Billeder og Tekst, heitir
mikið rit, sem Aschehoug bókaverslun er farin að gefa út um
Bandaríkin. Það ritar merkur rithöfundur, Roger Nielsen
að nafni, sem lengi hefur verið í Ameríku og er þar enn.
Hann hefur farið um öll Bandaríkin. í riti þessu verða yfir
1000 myndir, það á að verða 12 hefti og hvert hefti kostar
1 kr; er það einstaklega ódýrt eftir stærð heftanna. Það væri
ekki hægt að selja rit þetta svo ódýrt, ef ekki hefðu fengist
kaupendur að því svo þúsundum skiftir. Fjögur fyrstu heftin
eru komin út; eftir þeim -að dæma verður rit þetta mjög
fróðlegt og fallegt; góð bók fyrir þá, sem vilja kynnast Banda-
ríkjunum.
Röveren og Korset, Tokichi Ishii’s Historie.
Oversat af Knud Hee Andersen. Köbenhavn 1923. 128 bls.
Verð 3 kr., innb. 5 kr. (Aschehoug).
Ræninginn, sem titill bókarinnar byrjar á, er Tokichi
Ishii, japanskur maður, og hann er höfundur bókarinnar. Hann
var stórglæpamaður og myrti tvo eða þrjá menn. Loksins
tókst lögregluliðinu að taka hann fastan 1918.
Bók hans hefur vakið mikla athygli víða í löndum, því
að hún segir frá einhverju hinu átakanlegasta dæmi uppá
kraft gleðiboðskapar Jesú Krists. Ensk stúlka lagði nýja testa-
mentið inn í klefa bandingjans. Af því að hann hafði ekkert
sjer til dægrastyttingar, fór hann að lesa í því, þó með hálf-
gerðum óhug. En er hann las um krossfestingu Krists og að
hann bað fyrir þeim, sem gjörðu honum ilt, þá snerist hugur
hans. Hann sá, að þessi maður var betri en allir aðrir og
að hann mundi sannarlega vera sonur guðs, eins og hann
sagði. Nú las hann meir og meir, og snerist sjálfur algjörlega
til kristinnar trúar og breyttist samkvæmt því; hegðun hans
varð nú ágæt og friður í sál hans. Hanr. tók sjer nú fyrir
hendur að rita dagbók um sálarástand sitt þann tíma, sem
hann átti eftir, því að hann var dæmdur til dauða og var
tekinn af lífi tveim mánuðum síðar. Einnig ritaði hann æfi-
sögu sína og sagði frá öllum glæpum sínum og gaf lögreglu-
liðinu leiðbeiningar gagnvart glæpamönnum. Seinustu dagana,
sem hann lifði, hafði hann lokið við bók þessa, og gaf hana
(V