Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1924, Side 126

Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1924, Side 126
120 Saga Abraliams Liacolns Bandaríkjaforseta. nauðsynlegt. En hins vegar er svo ljúft og skemtilegt að tala um það, sem vel er gert, og Bjarni Jónsson kennari frá Heið- arseli hefur unnið þarna þarft verk, sem horfir til sannra þjóðþrifa, og þetta getur hann fátækur maður, aldraður barna- kennari, án nokkurs styrks úr landssjóði, af því að hann hefur einlæga löngun og vilja til þess að verða þjóð vorri að gagni, en starblínir eigi á eigin hagsmuni sína. Og annar maður efnalítill, Jón Helgason prentari, hefur gefið út bók þessa og selur hana við vægu verði eftir stærð. Æfisaga Lincolns er að mestu þýdd úr ensku. í’að hefði eflaust mátt finna fullkomnari sögu af honum, en bók þessi er við alþýðu hæfi. Þýðingin er eigi heldur alstaðar svo vönduð sem skyldi, — það er eigi heldur hin dýra þýðing af Faust, — en hún er auðskilin hveijum alþýðumanni, og það er mikill kostur. Á tveim stöðum í fyrri hluta bókarinnar fanst mjer, að efnið hefði þurft dálítillar skýringar fyrir íslenska lesendur, þótt Ameríkumenn þurfi þess ekki, þar sem um þeirra eigin sögu er að ræða. »Consort Bretaprins« á bls. 243 er og villandi. »Consort« er tignarnafn, en eigi eiginnafn. Þar hefði átt að standa Albert prins, og að hann væri maður meykonungs Breta. Tignarnafnið »Prince Consort« fekk hann 25. júni 1857, rúmum fjórum árum áður en hann dó. En þrátt fyrir þetta er bók þessi ágæt og skemtilegri en margar skáldsögur. Abraham Lincoln frelsaði miljónir svertingja úr þrældómi og forðaði Bandaríkjunum frá sundrung og sífeldum rjandskap. Sjaldan hefur nokkur konungur eða ríkisforseti átt við jafn- mikil vandræði að berjast sem hann. og aldrei hefur neinn þeirra verið mildari og sáttfúsari við óvini sína en hann. Hann vann sigur í hinni miklu borgarastyrjöld Bandamanna, en til þess að geta borið hinar miklu raunir á stjórnarárum sínum, hafði hann stundum þann sið, að segja kímnissögur, og eru sumar þeirra sagðar í æfisögu hans. Þær eru óvið- jafnanlegar og einnig mörg svör hans. Það er dauður maður sem hlær eigi að þeim eða dáist að svörum hans. Það hefur verið sagt um íslendinga, að þeir geti ekki verið kátir, nema þeir fái sjer í staupinu og drekki sig fulla, en það er dýrt að drekka brennivín og annað áfengi og það spillir heilsunni. Ein flaska endist eigi heldur lengi, og nú kostar flaskan oft meira en eitt eintak af æfisögu Lincolns. Þeir sem kaupa brennivín til að gleðja sig, ættu því heldur að kaupa æfisögu Linc.olns og lesa hana. Hún er meira verð en 1000 brennivínsflöskur, og menn geta lesið hana
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn
https://timarit.is/publication/249

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.