Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1924, Page 144
■ 44
Bókafregnir
Höfundurinn hefur gert sjer far um að kynna sjer rækilega
Noregs konungasögur og er mikill fróðleikur í bók hans.
Islandske Folkesag-n og Æventyr paa Dansk ved
Margrethe Löbner Jörgensen. Kbhavn 1924. 170 bls.
Gyldendals bókaverslun. 6 kr.
Hin trygga vinkona íslands frú Margrethe Löbner Jör-
gensen hefur þýtt úrval úr útilegumanna og álfasögunum á
dönsku. Mun það vera byrjun á allmiklu safni af þjóðsögum
vorum, sem hún ætlar að koma út á dönsku. fýðing þessi er
mjög nákvæm og vönduð, og eflaust ein hin besta, sem út
hefur komið af þjóðsögunum. Hinn ytri frágangur á bókinni
er líka góður, B. Th. M.
Fólkvísurnar dönsku. Agnes Slott Möller, Folke-
visebilleder. Kbh. 1923. 157 bls. Skrautrit ( stóru broti
(Aschehoug & Co) 6 kr. Fólkvísurnar dönsku eru ein hin
merkasta og fegursta grein af kveðskap norrænna þjóða á
miðöldunum og enda þótt víðar væri leitað. það hefur verið
ritað mikið um þær og þær gefnar út nákvæmlega og einnig
úrval úr þeim handa alþýðu. Skal hjer bent á hið ágæta úr-
valssafn, sem þau Axel Olrik og Ida Falbe-Hansen gáfu út
með mjög fróðlegum inngangi um vísur þessar eða rjettara
sagt kvæði Yfir 500 slík fólkskvæði hafa geymst í Dan-
mörku tnarga mannsaldra áður en tekið var að rita þau upp.
Efnið í þeim er margskonar; sum eru kappakvæði, önnur
sögukvæði og sum töfrakvæði. Sögukvæðin eru flest frá tíma
bilinu 1150 —1370. Mörg af fólkskvæðum þessum eru mjög
fögur. Þau voru sungin og eru mörg hin gömlu lög við þau
enn til Skyld þeim eru íslensk fornkvæði, sem Finnur Jóns-
son ritaði um í I. áti Ársritsins.
Ein af hinum helstu listakonum í Danmörku frú Agnes
Slott Möller hefur lengi haft miklar mætur á fólkskvæðunum
og í mörg ár unnið að því, að draga upp og mála tnyndir
af mönnum, stöðum og atburðum, sem nefndir eru í fólks-
kvæðunum. Myndir þessar hefur hún nú gefið út og fylgir
þeim langt inál eftir frúna, Segir hún bæði frá hvernig mynd-
irnar eru til orðnar og skýrir þær. Bók þessi þykir bæði vel
samin, fögur og skemtileg, einkum þeim sem unna fóiks-
vísununt.
Sig-fús Blöndal, Islandske kulturbilleder. Kmh.
1923-24. VIII -f- 156 bls. Verð 5 kr »Dansk-islandsk
Santfundi hefur gefið út bók þessa og eru sjö ritgjörðir eftir
Sigfús Blöndal ( henni. Hin fyrsta þeitra er um Jón Arason,
2. um Tyrkjaránið 1627, 3. um Skúla Magnússon og baráttu