Hlín - 01.01.1929, Page 150
148
Hlín
öllum sýslunefndum á landinu var sl. vetur skrifað
um landssýningarmálið og sjerstök áhersla lögð á, að
sýslurnar sendu, á sinn kostnað, karl og konu með
mununum suður.
'Nokkur fjelög í Reykjavík höfðu handavinnusýningu
á sl. vori. Var undirbúningstími stuttur, en til sýning-
arinnar var aðallega stofnað í þeim tilgangi að grensl-
ast eftir, hvað til væri af góðum sýningarmunum í
bænum, því vitanlegt ei^ að hvergi á landinu er jafn
mikið til af góðri handavinnu en einmitt í Reykjavík.
Þar er, auk þess sem unnið er í bænum sjálfum, margt
af eldri og yngri handavinnu úr öllum hjeruðum lands-
ins. Hlutaðeigendur þurfa að gæta þess að láta á lands-
sýningu hvern hlut komast í þá deild, ^em hann á
heima í. Á sýningunni í Reykjavík var nefnd kvenna
valin til að láta í ljós álit sitt um hvað af sýningar-
mununum væri hæft á landssýningu og hvað ekki. Á-
lit kvennanefndarinnar er á þessa leið:
»Á sýningu þeirri, sem nokkur kvenfjelög í Reykja-
vík hjeldu dagana 24.—27. maí 1929, vorum við undir-
ritaðar þrjár konur fengnar af Halld. Bjarnadóttur til
að velja úr muni, sem við álitum hæfa til að koma á
heimilisiðnaðarfandssýningu 1980, og ennfremur hvað
við álitum a6 ekici ætti að sýna þar. Það sem við urðum
ásáttar um að ekki ætti að sýna er:
1. Kúnstsaumaðar myndir.
2. Maskínuflos.
3. Nýtísku silki- og flauelsmálning.
Ekkert af þessu á heima á íslenskri heimilisiðnaðar-
sýningu«.
Reykjavík 28. maí 1929.
Kristín VícLalín Jakobson. Guðrún Pjetursdóttir.
Sólveig Björnsdóttir.
0