Árbók íþróttamanna - 01.12.1953, Page 11
Skýrsla framkvæmdastjórnar ÍSÍ 1951 og 1952
Verndari íþróttasambands íslands
A fundi sambandsráðs ISI 24. okt. 1952 var samþykkt að fara þess
á leit við forseta Islands, hr. Asgeir Asgeirsson, að hann gerðist vernd-
ari Iþróttasambandsins.
Með bréfi, dags. 31. okt. 1952, tilkynnti forsetaritari, að forseta
íslands væri ljúft að verða við þessari ósk.
Er þetta öllurn íþróttamönnum og íþróttavinum gleðiefni. Forseti
Islands, hr. Asgeir Asgeirsson, hefur verið áhugasamur um íþróttamál
•og iðkað ýrnsar íþróttir, aðallega sund, og var á yngri árum kapp-
sundsmaður i frernri röð, og iðkar hann enn þá íþrótt af kappi.
Iþróttahreyfingin þakkar einhuga forseta Islands fyrir þann mikla
lieiður og sæmd, er hann gerir Iþróttasambandi Islands með því að
gerast verndari þess.
Verndari ÍSÍ, hr. Sveinn Björnsson, forseti íslands, lézt i Reykjavík
25. jan. 1952.
Iþróttamenn sem öll íslenzka þjóðin voru harmi lostin við fráfall hins
mæta og merka þjóðhöfðingja.
Hr. Sveinn Bjömsson var alla tíð áhugasamur um íþróttamál. Hann
iðkaði ungur fimleika og sund og síðar golf. Var hann jafnan fús til
að aðstoða íþróttahreyfinguna, þegar til hans var leitað, og flutti oft
íþróttaerindi á hennar vegurn.
Hann gerðist verndari Iþróttasambandsins á 36 ára afmæli þess
28. jan. 1948.
Sigurjón Pétursson forstjóri, fyrrv. gjaldkeri íþróttasambandsins, lézt
í Reykjavík 1. okt. 1952 (f. 15. júli 1905). Hann var einn af forvígis-
mönnum knattspyrnuíþróttarinnar, var um árabil í stjórn Knattspyrnu-
félags Reykjavíkur og í stjóm ISI um sex ára skeið.
9