Árbók íþróttamanna - 01.12.1953, Page 13
firoingafjórðung Þórarinn Sveinsson og Jóhannes Stefánsson, Neskaup-
stað, sem er varamaður. Fyrir Norðlenclingafjórðung Hermann Stefáns-
son. Fyrir Reykjavík Gísli Halldórsson og Baldur Möller, sem er vara-
maður. Fyrir GSI Björn Pétursson og Þorvaldur Asgeirsson. Fyrir SSÍ
Erlingur Pálsson og Ingvi R. Baldvinsson. Fyrir FRI Garðar S. Gísla-
son. Fyrir KSI Jón Sigurðsson og Björgvin Schrarn. Fyrir SKI Einar
B. Pálsson og Einar Kristjánsson.
Ekki hafa mætt í einu tveir fulltrúar frá áðurgreindum aðilum, held-
ur til skiptis.
Sambandsráð hélt 3 fundi og afgreiddi eða tók til meðferðar 16>
mál.
3. okt. 1951 lét Kjartan Bergmann af störfum sem framkvæmda-
stjóri ÍSI samkvæmt eigin ósk. Kjartan hafði verið framkvæmdastjóri
ISI frá því 1945 og verið sérstaklega árvakur, samvizkusamur og dug-
legur í því starfi. Hermann Guðmundsson er nú framkvæmdastjóri.
Skrifstofa ÍSÍ
Skrifstofa sambandsins var eins og áður á Amtmannsstíg 1. Var hún
opin daglega kl. 10 f. h. til kl. 5 e. h. til fyrirgreiðslu þeim, er þang-
að leituðu. lþróttablaðið hafði þar afgreiðslu sína, og veturinn 1951—52
I)öfðu skíðafélögin í Reykjavík þar afgreiðslu fyrir skiðaferðir sínar.
Reynt var að gera þessa bækistöð ISI að íþróttamiðstöð með því
að fá sérsamböndin til þess að hafa þar samastað. Um það voru marg-
ir viðræðufundir haldnir og samþykktar tillögur. Arangur er sá, að
Knattspvrnusambandið heldur þar fundi sína og fleiri sérsambönd eru
væntanleg.
Rætt var um, að ISI þyrfti að fá stærra húsnæði fyrir rekstur sinn,
sérslaklega þegar sérsamböndin hefðu ílutt aðsetur sitt þangað. Athug-
un leiddi í ljós, að leiga á slíku húsnæði á hentugum stað í Rvík væri
ISI ofviða að óbreyttum ástæðum. Var þá horfið að því ráði að stækka
og endurbæta skrifstofuna. Var nokkuð af því verki unnið á árinu, og
eru sterkar líkur til þess, að hægt verði að Ijúka því á komandi vori.
40 ára afmæli ÍSÍ
í tilefni þess, að ÍSÍ átti 40 ára afrnæli 28. jan. 1952, hafði nokk-
ur viðbúnaður átt sér stað til að gera afmælisdaginn hátíðlegan. En
þar sem fráfall verndara ISI, hr. Sveins Björnssonar, bar að um það
11