Árbók íþróttamanna - 01.12.1953, Page 16
'þessara aðila. Framkvæmdastjómin ræddi málið á mörgum fundum og
samþykkti síðan einróma að senda endurskoðunamefndinni eftirfarandi
samþykkt:
„1. Framkvæmdastjóm ISI telur, að íþróttalögin frá 12. febr. 1940
hafi sem heild verið til mikilla bóta og orðið til eflingar fyrir
íþróttalífið í landinu, en lýsir því yfir í samræmi við stefnu ISI
fyrr og síðar, að vera eigi eitt íþróttasamband í landinu.
2. Þá viljum við sérstaklega benda á þrjú atriði, sem nauðsynlegt
er að breyta nú þegar:
a. Að 16. gr. íþróttalaganna verði felld í burtu vegna mikillar
óánægju íþróttafélaganna með framkvæmd hennar.
b. Að réttur ISI til að útskrifa þjálfkennara verði ótvíræður
(sbr. 20. og 22. gr. laganna).
c. Að hið opinbera veiti fé til íþróttanámskeiða fyrir þjálfkenn-
ara á vegum hinnar frjálsu íþróttastarfsemi í landinu og enn
fremur til bókaútgáfu ÍSI, sem það er lögskvldað til að gefa
út fyrir íþróttastarfsemina (sbr. 24. gr. íþróttalaganna).“
Hvaða breytingar endurskoðunarnefndin leggur til, að gerðar verði
á íþróttalögunum, er ekki vitað, því að nefndin hefur ekki skilað störf-
um.
Bindindismál
I tilefni af vínveitingum á skemmtunum íþróttafélaga var samþykkt
tillaga á síðasta iþróttaþingi, þar sem fordæmdar voru vínveitingar
og ölvun á skemmtunum íþróttafélaga og íþróttafélögunum falið að
vinna gegn slíku athæfi. Þrátt fyrir þessa samþykkt voru nokkur brögð
að því, að íþróttafélög væru með vínveitingar á skemmtunum sínum.
Því samþykkti framkvæmdastjórnin á fundi sínum 5. nóv. 1951 að
senda öllum sambandsfélögum ISI og héraðssamböndum eftirfarandi
ályktun:
Eftirfarandi samþykkt um bindindismál var gerð á íþróttaþingi 1951:
„Iþróttaþing ISI 1951 telur, að vínveitingar og ölvun á skemmt-
unum íþróttafélaga séu til tjóns og álitshnekkis fyrir íþróttahreyfing-
una, og felur öllum aðilum ISI að vinna gegn slíku athæfi af fremsta
megni.“
I framhaldi af samþykkt þessari og þeim skilningi, er fram kom á
þinginu um áhrifavald hennar, þá lýsir framkvæmdastjórn ÍSÍ því hér
með yfir öllum sambandsfélögum til eftirbreytni, að brot gegn sam-
þvkktinni heyri undir þá tegund brota, sem 13. töluliður 2. gr. nú-
14