Árbók íþróttamanna - 01.12.1953, Page 160
og öllu meiri hraði hjá því. Hins vegar var samleikur Valsmanna úti
á vellinum öllu nákvæmari, en þá skorti snerpuna. . . Ymis góð til-
þrif voru í þessum leik, en herzlumuninn vantaði . .“ (Alþ.).
KR 3 — Fram 2 14/6
„I byrjun leiks og fram yfir hann miðjan voru Frammarar í sókn
(2:0 eftir 18 mín.) og áttu ýmis góð tækifæri, en er leið á hálfleikinn,
var frumkvæðið hjá KR, og var svo áfram í seinni hálfleik, þar sem
knötturinn var oft langdvölum á vallarhelmingi Fram. Framvömin átti
í vök að verjast, en seiglaðist. . . var það ljóst, að slíkur sóknarþungi
sem var af hálfu KR-inga hlyti fyrr eða siðar að enda með marki . .“
(Alþ.).
Valur 1 — Víkingur 1 15/6
„Úrslitin eru engan veginn ósanngjörn eftir gangi leiksins. Bæði lið
áttu mörg tækifæri . . Aukaspyrnur voru allmargar, en leikurinn þó
ekki harður. Valsliðið sýndi eins og oft áður góðan samleik úti á vell-
inum, en voru linir við skotin . . Víkingsliðið lék nú ólíkt betur en gegn
KR . . hraði mikill og dugnaður.“ (Alþ.).
Fram 1 — Víkingur 0 ig/6
„'Þrátt fyrir nokkrar snöggar sóknarlotur Fram var Víkingur þó í
meiri sókn í þessum hálfleik. Hins vegar var leikurinn í heild bragð-
daufur og þófkenndur. Enginn vafi er á, að bæði lið geta leikið mun
betur og skemmtilegar en þau gerðu . . En það em svik við íþróttina
og áhorfendur, að leikmenn leggi sig ekki alla fram til þess að leika
eins vel og þeir geta bezt.“ (Alþ.).
Er hér var komið mótinu, var því frestað vegna utanfarar Akurnes-
inga til Noregs og vegna heimsóknar Rínarúrvalsins. Sýnt þótti, að bar-
áttan um titilinn mundi standa milli KR og Akurnesinga, en staðan í
mótinu var þessi, er hlé varð að gera á því:
L U J T Mrk
KR 3 2 1 0 6:3 5 st.
ÍA 2 2 0 0 6:3 4 -
Fram 3 1 0 2 6:8 2 -
Valur 3 0 2 i 2:3 2 -
Víkingur 3 0 1 2 1:4 1 -
158