Árbók íþróttamanna - 01.12.1953, Page 180
leiknum gegn Víking, en mark Víkings slapp oft nauðulega, einkum
í síðari hálfleik. Fyrri hálfleik lyktaði með sigri Vals með 2:1, en í
síðari hálfleik skoraði Valur enn 2 mörk.
Einstakir leikir mótsins fóru þannig:
Valur KR Fram Vik. Mrk
Valur............... X 5:1 3:0 4:1 12:2 6 st.
KR .............. 1:5 X 3:1 1:1 5:7 3 -
Fram .............. 0:3 1:3 X 4:1 5:7 2 -
Víkingur ........ 1:4 1:1 1:4 X 3:9 1 -
Þetta var 12. Reykjavíkurmótið, sem Valur sigrar í. KR hefur sigrað
14 sinnum, Fram 8 sinnum og Víkingur 1 sinni.
VORMÓT MEISTARAFLOKKS
fór fram 3.-26. maí, og lyktaði því með sigri Vals, en eftir venju-
lega leikumferð voru Fram og Valur jöfn að stigum og urðu að leika
tvívegis, unz úrslit mótsins fengust. Einstakir leikir mótsins fóru þannig:
Valur Fram KR Vík. Mrk
Valur ............. X 0:0 4:2 2:2 6:4 4+3 st.
Fram ............. 0:0 X 1:1 2:0 3:1 4+1 -
KR ............... 2:4 1:1 X 2:1 5:6 3
Víkingur ......... 2:2 0:2 1:2 X 3:6 1 -
Fram og Valur léku því um sigurlaun mótsins 22. maí og skildu
jöfn, 1:1, eftir framlengdan laik. Léku þau síðan á ný 26. maí, og bar
Valur þá sigur úr býtum með 2:0. Þetta er annað skiptið, sem mót þetta
er haldið, en i fyrra skiptið bar Vikingur sigur úr býtum.
HAUSTMÓT MEISTARAFLOKKS
fór fram 7. sept. til 5. okt. í mótinu tóku þátt meistaraflokkar KR,
Vals, Fram og Víkings, enn fremur I. fl. Fram og Þróttar. Leikið var á
íþróttavellinum og leiktími 2x30 mín. Liðunum var skipt í 2 riðla,
og fóru fram 2 leikir sama daginn, sinn leikur úr hvorum riðli.
A-RIÐILL:
KR Þróttur Fram Mrk
KR ...................... X 5:1 1:1 6:2 3 st.
Þróttur ................ 1:5 X 1:0 2:5 2 -
Fram ................. 1:1 0:1 X 1:2 1 -
178