Árbók íþróttamanna - 01.12.1953, Page 181
B-RIÐILL:
Valur Vík. Fr. (I) Mrk
Valur ................. X 5:0 2:1 7:1 4 st.
Víkingur ............. 0:5 X 4:1 4:6 2 —
Fram (I) ............. 1:2 1:4 X 2:6 0 -
Þegar hér var komið mótinu, var skyndilega gerð sú breyting á,
að Þróttur og I. fl. Fram féllu út, en mótinu síðan haldið áfram með
þátttöku meistaraflokkanna, eins og ekkert hefði í skorizt, og leikir
þeirra aðeins reiknaðir til stiga. Tafla mótsins eftir þá breytingu litur
þannig út:
Valur KR Fram Vík. Mrk
Valur .............. X 0:0 3:0 5:0 8:0 5 st.
KR ................ 0:0 X 1:1 4:3 5:4 4 -
Fram............... 0:3 1:1 X 1:1 2:5 2 -
Víkingur .......... 0:5 3:4 1:1 X 4:10 1 -
Þetta er 2. skiptið, sem Valur vinnur Kalstað-bikarinn, en KR hefur
einnig unnið hann tvisvar, en önnur félög aldrei.
Leikar fóru þannig í þeim 4 mótum meistaraflokks, sem haldin voru
um sumarið, að Valur sigraði í 3, en KR í 1.
I. FLOKKUR
Reykjavíkurmót I. flokks var háð í einfaldri umferð á íþróttavellin-
um 12. mai til 24. júní. Eftir harða og jafna baráttu milli Vals og
KR bar Valur sigur úr býtum.
Valur KR Þróttur Fram Vík. Mrk
Valur ........... X 1:1 0:0 3:0 4:0 8:1 6 st.
KR ............. 1:1 X L1 4:1 1:0 7:3 6 -
Þróttur....... 0:0 1:1 X 2:3 3:1 6:5 4 -
Fram ........... 0:3 1:4 3:2 X 0:0 4:9 3 -
Víkingur .... 0:4 0:1 1:3 0:0 X 1:8 1 -
Þar eð KR og Valur urðu jöfn að stigum, urðu þau að leika til
úrslita, og nægðu ekki færri en 3 leikir til þess að fá skorið úr um
sigurvegara í mótinu. Fyrsti leikurinn fór fram 8. júní, og lyktaði hon-
um með 2:2 eftir framlengingu, annar leikurinn fór fram 20. júni, og
lyktaði honum með 0:0, einnig eftir framlengingu, en í 3. tilraun, 24.
júní, bar Valur sigur úr býtum með 1:0.
179