Árbók íþróttamanna - 01.12.1953, Page 191
íslandsmeistarar í körfuknattleik 1952. Neðri röð, frá vinstri: Guðmundur Péturs-
son, Hjálmar Guðmundsson, Ingi Gunnarsson, fyrirliði liðsins, Friðrik Bjarna-
son, Helgi Jakobsson. Aftari röð, frá vinstri: Erlendur þjálfari, Rósmundur Guð-
mundsson, Kristján Júlíusson, Bogi Þorsteinsson, formaður ÍKF, Runólfur Sölva-
son, Jóhann Guðmundsson og erlendur þjálfari.
ar og menntaskólanemar kepptu í körfuknattleik, og unnu háskólastúd-
entar.
Vorið 1951 bauð Lockheed-flugfélagið nokkrum félögum og hópum
áhugamanna í körfuknattleik suður á Keflavíkurflugvöll til þess að
keppa þar í körfuknattleik, og gaf það ISI verðlaunabikar í því skyni.
Þessir kepptu: IR, IS, menntaskólanemendur, bókbindarar, lögreglu-
þjónar og íslenzkir starfsmenn á Keflavíkurflugvelli. Keppt var í tveim
riðlum, og unnu menntaskólanemendur annan, en ÍR hinn. ÍR vann
svo í úrslitum.
Árið 1952, í febrúar, er annað skólamótið haldið á vegum ÍFRN.
I því tóku þátt nemendur fjögurra skóla, háskólans, menntaskólans,
kennaraskólans og verzlunarskólans. Háskólastúdentar báru sigur úr
býtum.
I apríl 1952 var haldið fyrsta Islandsmótið í körfuknattleik á veg-
189