Árbók íþróttamanna - 01.12.1953, Page 199
SKAUTAIÞROTTIN
Skautaíþróttin veturinn 1951—52
EFTIR JÓN D. ÁRMANNSSON
Á þessum vetri var langtum meira um skautaís hér á Akureyri held-
ur en veturinn áður. Hér kom ís 21. okt., og var síðan hægt að fara á
skauta flesta daga til jóla. Eftir áramótin féllu fleiri dagar úr, vegna
þess að tæki skorti til þess að halda við ís.
Nú var á hinn bóginn næstum aldrei skautaís í Reykjavík. Þó var
Skautamót Islands haldið þar í febrúar, en reyndist mjög örðugt. Síðar
veittist og tækifæri til þess að halda Skautamót Reykjavíkur.
Á Akureyri var Skautamót Akureyrar haldið í lok febrúar. Afmælis-
mót SA var haldið um áramótin, og var þá keppt í íshockey auk hrað-
hlaupsins. Auk þess voru haldin 2 innanfélagsmót og nokkur æfinga-
mót.
Sett voru fjögur Islandsmet á vetrinum, öll af Eddu Indriðadóttur,
tvö í 500 m., eitt í 1500 m. og eitt í 3000 m. hl. kvenna.
Kristján Árnason á enn öll gildandi met í karlahlaupum, og hann
varð Islandsmeistari í hraðhlaupi öðra sinni. Næstur honum varð Þor-
steinn Steingrímsson, sem síðan varð Reykjavíkurmeistari, en Kristján
var þá farinn til Noregs. Emil Jónsson, SR, tók eftirtektarverðum
framförum og varð 3. á Reykjavíkunnótinu.
Á Akureyri urðu og miklar framfarir í hraðhlaupi. Björn Baldurs-
son keppti nú í fyrsta skipti í eldri flokki og vann bæði Afmælismótið
°g Akureyrarmótið. Sett voru 6 ný Akurevrarmet auk meta Eddu.
Ishockey var talsvert æft lijá Skautafélagi Akureyrar, en listhlaup
hins vegar óvenju lítið. Ein íshockeykeppni var haldin. Kepptu þar
tvö lið frá SA. Þetta er önnur íshockeykeppnin, sem haldin er hér á
landi, svo að mér sé kunnugt um. Sú fyrsta fór fram á skautamóti
Skautafélags Akureyrar 1941, en þá var einnig um sýningarkeppni
197