Skírnir - 01.01.1878, Blaðsíða 14
14
ÓKRIÐURINN.
13 daga á undan, en þann dag komust þeir sízt til að sinna
matvælunum. þeir þóttust því í illa klípu komnir og mændu
vonaraugum norSur af ásunum eptir meira fulltingi. Sem vita
má, þá glaðnaSi heldur yfir þeim, er þeir sáu vopn blika i skóg-
unum fyrir neban sig á norSurhallanda skarSsins og i dal þeim
er Jantradalur heitir. þar kom einn af enum röskustu hers-
höfSingjum Rússa, Radetzký, sem fyr er nefndur (fór á undan
meS liS sitt vfir Duná til Sistóva), og hafSi meS sjer allmikiS liS.
í býtiS daginn á eptir ljet hann sveitir sínar ráSast á Tyrki, og
þaS má meS sanni segja, aS Rússar væSi hjer eld, þegar þeir
sóttu niSur í kvosirnar aS Tyrkjum, eSa klifruSu upp til þeirra
í fellin á móti skothriSinni. þaS er sagt, aS foringjar Rússa
og sumir hershöfSingjanna rynnu bjer á undan mönnum sinum,
og örfuSu þá svo til öruggrar framgöngu. Hjer var svo hart aS
gengiS, aS Tyrkir þokuSu frá fremstu skotgörSum sinum, og
fluttu fallbyssur sínar upp lengra. BæSi 25. og 26. ágúst háSust
hvorutveggju viS meS sama ákafa og áSur, en 27. slotaSi loks
stormurinn viS þaS, aS Tyrkir höfSu sig undan og tóku stöSvar
fyrir sunnan miSfelliS í framanverSu skarSinu. í þessum viBur-
eignum böfSu Rússar látiB tvo af hershöfSingjum sínum (Drag-
miroff og Dorianský) auk 2600 annara hermanna. í liSi Tyrkja
var manntjóniS enn meira. Allan fyrri part september mánaSar
var aS mestu leyti hvíld á bardögunum í skarSinu, en Súleiman
jarl dróg aB sjer meira liB ogrjeSzt á aptur 17. september. Hann
ljet áhlaupaliSiB renna aS vígjum Rússa í þremur deildum. Hægra
megin Rússa tókst Tyrkjum aS komast á svig viS felliS og þar
runnu þeir upp aB efsta virkinu (Nikulásar virki) og stráfelldu
þá alla, er þar stóBu. Súleiman þóttist nú hafa sigurinn sjer í
höndura, og sendi þá gleSifregn til MiklagarBs, aS skarSiS væri
nú á sinu valdi. Hann hrósaBi hjer sigri of snemma, því sá var
herzlumunurinn eptir, aS koma nægu HBi upp í fellsstöBina á eptir
hinum, er þar voru uppi. Rússar veittu hörSustu atgöngu aS þeirri
sveit, sem víginu hafSi náB, en urSu aB hrökkva frá í fyrstu.
En þegar varaliS Súleimans sótti upp aS fcllinu, þá gátu Rússar
komiS stórskeytura sínum svo vel viS, aS sprengikúlurnar gérSu
mestu auSnir í þeim fylkingum. ViS þetta komst brjál á sókn-