Skírnir - 01.01.1878, Blaðsíða 67
FRAKKLAND.
67
hluta keisaravina — að sögn 250, og þó voru Jteir ekki meir
enn svo ánægðir. J>ó stjórnin gengi alleinarðlega að sínu verki,
fór bráðum aS brydda á ágreiningi með einvaldsflokkunum, og
það fór nú sem fyrri, að Orleaningar tóku að draga sig heldur
út úr, og sumir hurfu heint í flokk þjóðvaldsmanna. þar að
auki varð brösótt meÖ lögerfðamönnum og keisaravinum, og
varð um nokkurn tíma svo mikið bragð að því, a5 stjórnin
bað páfann um að sætta þá. Slíkt þótti ekki vita á mikinn
sigur vi& kosningarnar, en til þess aS sem fæst yrSi óreynt, þá
lagSi Mac Mahon sjálfur á ferS um landiS — í orSi kveSnu
til herstöSvanna, en allir vissu, aS til var ætlazt, aS hann
skyldi verja og fegra mál sitt og stjórnarinnar í kveSjusvörum
til borgastjóra og borganefnda þar sem hann kæmi viS á leiS-
inni. Hann sagSi bjerumbil þaS sama á hverjum staS, aS menn
vildu bæSi tortryggja sig og rægja, sem hefSi hann ill ráS meS
höndum í gegn stjórnarskipun ríkisins, sjer hefSi aldri dottiS
annaS í hug enn efla þrifnaS landsins og velfarnan, og halda
öllu í rjettum skorSum þar til er sinn tími væri útrunninn.
Hjer tókst svo óheppilega til fyrir honum, aS þau svör mæltust
misjafnt fyrir hjá sumum í hans lifei, og keisaravinum sjerilagi,
því þeim þótti hjer heldur heigullega aS orSi kveSiS. En
bæSi f þeirra hlöSum og í klerkabiöSunum höfSu menn látiS
sem drjúgast yfir því, aS þjóSveldinu mundi innan skamms
sýnt í tvo heimana. Annars gat bæSi forsetinn og allir aSrir
sjeS, hvern hug alþýSan hafSi til stjórnarinnar, því á flestum
stöSum þar sem mart fólk var saman komið, var kallaS: „lifi
þjóSveldiS!„ eSa „lifi þeir 363!“ eSa þá: „lifi Thiers!“ Ein-
mitt um þessar mundir var Thiers líka á ferS, og voru þær
viStökur, sem hann fjekk, ekki stjórninni heppilegar til saman-
burSar. Thiers var alstaSar fagnaS sem ástvin þjóSarinnar, en
hann baS alla halda í þjóSveldiS traustu haldi. — J>jó8valds-
menn ljetu í annan staS ekki deigan á síga, en hjeldu sjer vel
saman og spöruSu hvorki til kappsmuni nje mikil framlög, aS
halda áhuga fólksins vakandi á málstaS þjóSveldisins, og búa
þaS svo undir kosningarnar, sem nauSsyn stóS til. J>eir settu
fyrst nefnd manna, sem þeir kölluSu lögmannanefnd, til þess