Skírnir - 01.01.1878, Blaðsíða 97
RPÁNN.
97
aðrir forstöðumcnn nppreisnarinnar leituðn sjcr svo farborSa,
en surair gengu á hönd í gegn griöum og uppgjöfura saka.
Mansal og þrælkun svertingja er úr lögum tekin, t><5 meÖ svo
fyrir skildu, að þetta skai komast til fullnaðar smám saman á
tilteknú árabili, og þeir fá uppbót af ríkinu, sem gefa þrælum
sínum lausn. Undan J>ví eru jþeir menn skildir, sem hafa hlýðt
uppreisnarstjórninni og þræla eiga.
Isabella drottning þykir leggja heldur litla móðurást á son
sinn (Alfons konung) og gerir honum fleira til stríðs enn eptir-
lætis. þó margir hyggðu misjafnt um að veita henni heimkomu-
leyfi, J)á vildu menn ekki gera konungsmóðurina útlæga, og
vísuðu henni til aðseturs í Sevillu. J>essu undi hún ekki alls-
vel og gerði sjer í fyrra haust erindi til Madrid á fund sonar
síns, og fjekk allvirðulegar viðtökun, en hitt eigi, sem hún vildi,
að mega ílengjast i höfuðborginni. í haust eð var lagði hún
aptur sömu leiðina, og kom til höfuðhorgarinnar 28. september,
einmitt ]>ann dag er hún varð að stökkva |>aðan fyrir uppreisn-
inni fyrir 10 árum. Mönnum þótti sem hún vildi með komu
sinni storka ]>eim öllum, sem höfðu styrkt til að svipta hana
ríkisvöldum á Spáni, en höfuðerindið var J>ó l>að, að hún vildi
brjála ráðahag sonar síns. Hjer kora hún engu áleiðis, og varð
honum mjög gröm í skapi. Hún fór j>á J>aðan til Parísar og
hefir búið j>ar síðan utan samvista við mann sinn (Frans kon-
ung af Assisi), sem lengi hefir verið. Hún Ijet sjer J>að verða
fyrst fyrir eptir þangaðkomuna að heimsækja frænda sinn og
fjandmann sonar sfns, Don Carlos, og fóru ýmsar sögur af
þeirra mökum, og því var þar með fleygt um tíma, að hún
hefði í ráði að lýsa son sinn eigi rjett borinn til ríkis, en um
faðerni lians hefir líkt verið kvisað og um faðerni Napóleons
þriðja í fyrri daga. Stjórninni í Madrid þótti eitthvað svo
tortryggilegt um vináttu þeirra ísabellu og Don Carlos, að hún
skoraði á stjórn Frakka, að vísa honum frá París. J>á visbend-
ing hefir hann líkast fengið, því skömmu síðar brá liann vist
sinni og fór til J>ýzkalands. J>að var annað, sem drottningu
líkaði illa, er dóttir hennar vildi ekld fylgja henni frá Madrid,
en kaus heldur að vera við hirð bróður síns. Til brúökaups
Skívnir 1878. 7