Skírnir - 01.01.1878, Síða 61
FRAKKLAND.
61
Englendingar munu hafa fundiö til lítilla freistinga af slíkum
fortölum, er menn vildu gera þá að verstu ódrengjum við Tyrki
og fleiri um leið, en Frakkar hafa oröiö aö viröa það til
drengskapar, er þeir, sem sagt er, ljetu þá þegar vita, hvaö
hjer var í bruggi. Menn þykjast og vita fyrir víst, og svo
hefir orÖ farið af, aö erindrekar hvorratveggju hafi veriÖ mjög
samrýndir í öllum ráðum og tiltektum í Miktagaröi, síðan mis-
klíöirnar óxu meÖ Bretum og Rússum, og að sendiboði Frakka
(B'ournier) hafi stuöt mál Englendinga sem fremst hann mátti,
og látið erindreka þeirra þegar vita, hvers hann varö áskynja
um fortölur Rússa fyrir soldáni og ráöherrum lians eöa öÖrum
málsmetandi mönnum, og svo frv. Dragi til ófriöar meö
Rússum og Englendingum, þá er þaÖ þó ekki efamál, að
Frakkar sem fleiri vilja halda sjer utan við þau viðskipti í
lengstu lög, enda munu grannar þeirra (þjóðverjar) hafa á þeim
góðar gætur, en það mætir þá hvað öðru , að þjóðverjar ein-
mitt sökum Frakklands veröa að sitja á sjer, ef keisara þeirra
kynni að tanga til að veita Alexander frænda sínum fulltingi.
þaö sem jafnast kveður við í blöðum Frakka, er, aö þeir hafi
um svo mart að annast hcima hjá sjer, og hjer þurfi svo mörgu
í liðinn að kippa, að þeir gcti annara málum lítinn gaum gefiÖ,
en hitt mundi þó óráðið mest, ef þeim kæmi til hugar, aö
hlutast til ófriðar, í stað þess að forðast hann einsog heitan
eldinn. þeir sem gruna þá um hefnda hug við þjóðverja segja
líka, að þeir verði að vinna miklu meira að endurskipan hers
síns, áður þeim verði fært að fara í hendurnar á öðrum eins
hernaðarskörungura. það getur þó verið, at> hjer muni minna
enn ætlað er, en hitt er annað mál, aö öllum hyggnum mönnum
á Frakklandi þykir það skyldara og ráðlegra að koma högum
landsins í gott horf, festa skipun ríkisstjórnarinnar, eyða flokka-
stríðinu, í stuttu máli: að koma ríkinu til fulls úr því bráöa-
birgðar ástandi, sem mótstöðumenn þjóðveldisins geta glaðst af
til 1880, heldur enn hitt, að hleypa þjóöinni í nýja styrjöld og
stórmæli. það virðist líka, sem Frakkar hafi viljað sýna, hvernig
þeir ætlast til að þjóðveldið gangi á undan öðrnrn í eptirdæmi
til friðar og friðarafreka, er þeir hafa einmitt á þeim tíma,