Andvari - 01.01.1910, Blaðsíða 74
52
ísland gagnvart öörum rikjum
Sturluson kosinn lögsögumaður í annað sinn. Orða
annálar það svo: »Snorri tók lögsögu« eða »Snorri
legifer iterumw.1) Á þessu þingi urðu þeir sekir Aron
Hjörleifsson og fimtán biskupsmenn eptir Grímseyjar-
bardaga.2)
1223. »Þelta sama sumar lét Snorri Sturluson
lýsa hernaðarsök á hendr Þorvaldi (Vatzíirðingi).
Fór með málit Órækja Snorrason fjórtán vetra gam-
all. Varð Þorvaldr á þinginu sekr skógarmaðr . .
Eptir þingit kom Sighvatr Sturluson lil Sauðafells .. .«3)
1224 var Alþingi uppi: »En þetta sumar fvrir
þing sendi Snorri (Sturluson) orð Þórði bróður sín-
um, ok bauð honum lieim a/1 5 6/ þingi . . . Kom Þórðr
| at þingv‘j í Stafaholt........Þá er Þórðr Sturluson
var í Stafaholti, komu þar Hrafnssynir á náðir Snorra.
En hann sá þat ráð fyrir, at Sveinbjörn og Grímr
riðu til þings með goðorð þeirra; ok fekk hann þá
Þórði bróður sínum, ok vóru þeir með hónum um
þingit . . . Þetta surnar kom Þórðr snemma á þingit,
og tjaldaði Hlaðbúð, er fylgdi Snorrungagoðorði; en
Sturla tjaldaði Saurbæingabúð . . . Þorvaldr Snorra-
son kom upp at dómum ok fjölmennr . . .«fi)
1225. Alþingi. »Um sumarit eplir fjölmentu þeir
allir til þings,7/ Snorri ok Sturla, Þórðr ok Böðvarr
son hans, Þorvaldr Vatzfirðingr ok Sighvatr norðan.
Komsk þá upp goðorðslilkallit af þeim bræðrum við
1) Höyersannáll, Konungsannáll, Skálholtsannáll, Gottskálks-
annáll, Flateyjarannáil.
2) Aronssaga kap. 10. og 11.; Sturl. I, 267; II, 329, 330;
Bisk. I, 621.
3) Sturl. I, 263.
4) af, orðamunur.
5) [er hann fór af þingi, orðamunur.
6) Sturl. I, 265—266. Sbr. þó Sturi. I, 271.
7) alþingjijs, orðam.