Skírnir - 01.01.1957, Síða 40
38
Einar Haugen
Skírnir
(field analysis). Hver af 06101111 eru háskólarnir farriir að
raunprófa áætlanir um þjálfun í rannsóknarstofum, þar sem
segulbandstæki eru notuð til að árétta viðleitni kennarans og
þar sem nemandinn getur hlustað á réttan framburð eftir vild.
Slík tæki eru að vísu ekki hluti málvísindanna sjálfra, en vís-
indaleg hugðarefni málvísindamannanna leiða til náinna
kynna af framförum í vísindalegum efnum í þessari grein
sem öðrum.
Á enn öðrum vettvangi, þar sem miklar vonir voru bundn-
ar við starf þeirra, hafa málvísindamennirnir riðið á vaðið,
og á ég þar við enskukennslu fyrir útlendinga. The American
Council of Learned Societies er að gefa út flokk námsbóka í
þeirri grein, og við Michiganháskóla hefir verið unnið að
þeim fræðum árum saman. Kennaraliðið þar gefur út ársfjórð-
ungsrit, sem heitir Language Teaching, og er þar að finna
einhverja þá aðgengilegustu kynnifræðslu í málvísindum, ætl-
aða málakennurum, sem ég veit um. Við Georgetownháskóla
hefir verið komið á fót skóla í tungumálum og málvísindum,
þar sem málvísindamenn og málakennarar vinna saman að
verklegri kennslu á rannsóknarstofum með harla góðum ár-
angri. Háskólinn gefur út flokk sérrita, sem fjalla um tungu-
mál og málvísindi, meðal annars skýrslur um ráðstefnur, sem
árlega eru haldnar til skrafs og ráðagerða um þessi efni.1)
Við Cornellháskólann hefir öll kennsla í erlendum tungu-
málum verið sameinuð í einni deild, og bókmenntimar á
þeim einar kenndar í sérstökum deildum. Árið 1946 kom ut-
anríkisráðuneytið á fót málaskóla fyrir starfslið utanríkisþjón-
ustunnar, þar sem rækileg námskeið em haldin undir leið-
sögn þjálfaðra málvísindakennara.2) Mörg önnur námskeið
eru haldin, og er fjallað um nokkur þeirra i yfirlitsriti eftir
John B. Carroll, sem nefnist The Study of Language — A Sur-
x) Átta hefti komu út á árunum 1951—1954; sjá sérstakl. Ruth Hirsch,
Audio-Visual Aids in Language Teaching (No. 5; March, 1954) og Emst
Pulgram, Applied Linguistics in Language Teaching (No. 6; July, 1954).
2) Sjá William P. Maddox, The Institute’s program of language in-
struction, Foreign Service Journal, July, 1949; Department of State bulle-
tin on The Foreign Service Institute (July 1, 1952).