Skírnir - 01.01.1957, Blaðsíða 170
168
Sigfús H. Andrésson
Skírnir
lent saman við venzlamann sinn, Jón Eggertsson frá ökrum,
sem um tíma var klausturhaldari á Möðruvöllum, en Jón
átti í deilum við flesta fyrirmenn landsins. Reyndi hann loks
að klekkja á þeim með því að kæra þá til konungs fyrir ýmiss
konar vanrækslu í embættum sínum, og var Þorleifi, sem þá
hafði sagt af sér lögmannsembætti fyrir nokkrum árum, stefnt
utan ásamt Gísla biskupi Þorlákssyni, báðum þáverandi lög-
mönnum og fleirum. Aldrei varð þó af utanförinni, þar eð
Jón komst brátt sjálfur í kast við dönsk stjórnarvöld, og féllu
þessar ákærur þá niður.
Eftir þetta kemur Þorleifur ekkert teljandi við sögu. Hann
átti heima á Þingeyrum allt til 1685, er Lárus Gottrúp hafði
tekið við klaustrinu. Jón sonur Þorleifs hafði raunar fengið
veitingarbréf fyrir Þingeyrum þegar árið 1678, og segja marg-
ar heimildir það hafa verið með óvilja föður hans. Hefir þessi
saga greinilega komizt af stað um það leyti sem Jón fékk
klaustrið og svo varðveitzt í ritum séra Jóns Halldórssonar,
sem virðist hafa verið heldur í nöp við Þorleif, enda á önd-
verðum meiði við hann í galdramálunum. Samkvæmt alþing-
isbókinni fékk Jón klausturumboðið með fullu samþykki föð-
ur síns, enda segir í Eyrarannál Magnúsar sýslumanns Magn-
ússonar, sem var nákunnugur þeim feðgum, að samkvæmt
veitingarbréfinu hafi Jón átt að fá klaustrið, þegar faðir hans
vildi sleppa því við hann, og varla hefði Þorleifur að öðrum
kosti kært sig um að búa áfram á Þingeyrum. Tæplega getur
honum yfirleitt hafa verið það óljúft, að tryggt væri, að klaust-
urumboðið væri áfram í höndum ættar hans.
Jón Þorleifsson varð skammlífur, dó um áramótin 1682
—83. Hafði hann menntazt allvel hér heima og eitthvað er-
lendis. Auk lians áttu þau Þorleifur og Ingibjörg tvo sonu,
Hannes og Guðmund. Hannes gekk menntaveginn, stundaði
nám við Hafnarháskóla og varð vel lærður. Árið 1681 var
hann skipaður konunglegur fornfræðingur (antiquarius re-
gius) og skyldi meðal annars safna íslenzkum handritum.
Mun hann hafa verið hér heima á íslandi eitt ár og sigldi
haustið 1682 með Höfðaskipi áleiðis til Kaupmanna-
hafnar, en skipið týndist með öllu innanborðs. Er talið, að