Skírnir - 01.01.1957, Blaðsíða 201
Skírnir Heilbrigðiseftirlit í skólum og kvillar skólabarna
199
Tannskemmdir eru algengastar allra kvilla, sem hrjá menn-
ingarþjóðir. Þær eru fylgifiskur nútímamenningar og teljast
til næringarsjúkdóma. Ein aðalorsök þeirra virðist vera mik-
il neyzla á sykri og mjölmat, þótt margt fleira komi til. Því
fer fjarri, að tannskemmdir séu meinlaus kvilli, sem óþarft
sé að gefa gaum. Þær hafa áhrif á líðan manna og skap og
geta stundum valdið hættulegum sjúkdómum. Tannlæknis-
þjónusta þykir því hvarvetna nauðsynleg í barnaskólum.
Erfitt er um það að dæma, hvort tannskemmdir hafa
minnkað hér á landi á síðustu árum eða ekki og hvort þær
eru fátíðari hér en í grannlöndum okkar. Talið er, að tann-
skemmdir hafi verið fátíðar hér fram yfir miðja síðustu öld,
en úr því fara þær að aukast, og 1925 eru 89,3% skólabama
í Reykjavík með skemmdar tennur. Síðustu árin hafa skóla-
læknar talið frá 60—80% barna með skemmdar tennur, en í
borgum Norðurlanda em þau talin um eða yfir 90%. Af
þessu verður þó engin sérstök ályktun dregin. Skólabörn á
Norðurlöndum em ári lengur í barnaskóla en hér, og tann-
skemmdir aukast með aldri. 1 Reykjavík eru aðeins taldar
fram skemmdar fullorðinstennur, og í skýrslum lækna ann-
ars staðar á landinu er framtali á viðgerðum tönnum áfátt.
Veldur þetta þvi, að um áreiðanlegan samanburð getur ekki
verið að ræða, og væri þetta rannsóknarvert.
Nokkrir kvillar skólabama.
Reykjavík K H
1925 1954/55 1949/50 1951/51
I II III IV V
Beinkröm ................ 5,87 3,47 5,20 35,88 3,57
Hryggskekkja .... 0,9 3,43 2,14 2,60 54,71 2,95 17,56 3,91
Ilsig ................... 9,22 5,08 6,04 33,97 5,70 18,38 14,79
Kviðslit ................ 2,82 3,14 2,60 1,07 1,94 2,58
Kverklastækkun .. 10,7 10,98 2,68 2,08 36,00 2,07 11,61 6,72
Kverklar teknir . . . 4,73 28,63 24,56 20,02 13,90
Sjóngallar ....... 6,6 11,20 10,70 14,36 0,95 4,13 13,17 9,60
Gleraugu nota .... 8,54 4,21 8,01 5,24 3,35 12(ca.)
Heyrnardeyfa .... 3,9 0,69 0,34 1,04 0,00 0,45 1,26 0,68
Málgallar ........ 2,90 0,74 0,31 ? 1,17 2,41 1,35
Litblinda ........ 7,12 7,88