Skírnir - 01.01.1957, Page 136
134
Arnheiður Sigurðardóttir
Skirnir
Adgætni er eingi þrætni. Scheving I, 7.
Málsháttur þessi er kunnur frá miðri 17. öld:
Adgiætni er einginn þrætni, huor sietst svinnlega nær
hann skodast innilega. G.Andr. Deil. 17.
Ekki hef ég fundið málsháttinn í neinni annarri heimild,
sem ég hef athugað. Bl. tekur málsháttinn eftir Scheving, en
þýðir hann ekki.
Orðið þrœtni er kunnugt úr fornu máli. Fr. þýðir það
„Trættekærhed“ (,,þrætugirni“) og vitnar í eftirfarandi
dæmi:
Engi var öfund þeirra í millum eða sundrþykki, engi
ágangr eða þrætni. Bps. I, 240 (Jónss., 27. k.).
Það kemur einnig fyrir í eldri rímum:
Þeygi sonnu þrætne j mot
ec þickunzt veita. Bímnas. 1,255 (Þr. VII, 21).
Bl. þýðir orðið „Disputerlyst, Modsigelselyst“ og vitnar
jafnframt í málsháttinn.
Orðið aSgætni kemur ekki fyrir í orðabókum yfir fornmál-
ið. Elzta dæmi, sem ég hef fundið um það, er áðurnefnd
málsgrein í riti G.A. Það er ekki tilgreint hjá B.H., en Bl.
hefur það og telur það merkja „eftirtekt, athygli, varfærni,
aðsjálni“.
Af texta Deil. sést, að höfundur þess notar orðið í merk-
ingunni: „náið eftirlit, aðgát“. Merking málsháttarins virðist
þar vera „hægt er að hafa náið eftirlit með e-u án þess að
stofna til deilna".
Ekki finnst mér fráleitt að ætla, að G.A. sé sjálfur höf-
undur að þessum málshætti.
Ö
01var þarf sá ad vera, sem logunum á ad stýra.
Scheving I, 60.
Þennan málshátt hef ég ekki fundið í neinu þeirra máls-
háttasafna, sem ég hef borið saman við Scheving, nema hjá
F.J.1) Bl. hefur tekið hann eftir Scheving og telur ölvar merkja
1) Málsh. 194.