Skírnir - 01.01.1957, Blaðsíða 51
Skírnir
Islenzk stafrófskver
49
Yfirlit þetta sýnir, að þetta er í raun og veru fyrsta íslenzka
stafrófskverið, sem ber nafn með rentu. Hinn trúfræðilegi
barnalærdómur hefur algerlega vikið til hliðar, og höfuðtil-
gangur kversins er fyrst og fremst sá að auðvelda börnunum
sjálft lestrarnámið. Flokkun stafanna eftir því, hvar og hvern-
ig hljóð þeirra myndast, er alger nýjung í stafrófskveri. Lögð
er áherzla á að æfa kerfisbundið helztu stafasambönd í mál-
inu. Er kverið samið af alúð og vandvirkni, og með því er
lagður sá grundvöllur, sem flest stafrófskver síðan hafa verið
byggð á að meira eða minna leyti. Og ef við berum kver þetta
saman við eldri kverin, þá er byltingin svo gagngerð, að manni
finnst furðulegt, að það skuli koma út sama ár og síðasta
Hólakverið. Svo gerólík eru þau. Og það getur ekki hjá því
farið, að þessi litla bók prófastsins í Hjarðarholti verði talin
merkur áfangi i menningarsögu þjóðarinnar.
Átta árum eftir, að kver þetta kom út, var með konungs-
bréfi 2. júlí 1790 fyrirskipað, að öll börn í Skálholtsstipti
skyldu læra að lesa (Lovsamling for Island V. 694—96). Og
þótt bréf þetta tilnefni aðeins Skálholtsstipti, enda stílað til
Hannesar biskups Finnssonar, hefur tilskipunin án efa fljót-
lega náð til landsins alls.
Klemens Jónsson getur þess í bók sinni Fjögur hundruÖ ára
saga prentlistarinnar á Islandi, að Stafrófskver hafi komið út
í Leirárgörðum 1796.
Skömmu eftir aldamótin 1800, sennilega kringum 1811,
kom út í Leirárgörðum Stafrófs-Tafla. Var þetta stafrófið með
gotnesku og latnesku letri, tölustafir og skýringar á þeim allt
upp að milljón og síðast atkvæðatafla. Neðanmáls á atkvæða-
töflunni standa þessi orð:
Töflur þessar má ef til vill skera úr kverinu og líma á
tréspjald handa börnum til stöfunar, þar nærverandi
stríðstíð bannar um sinn nýtt upplag af stafrófskveri.
Hér er átt við Napóleons-styrjaldirnar, sem orsökuðu mikla
siglingateppu til íslands, og varð Leirárgarðaprentsmiðja þá
mjög að draga úr starfsemi sinni vegna pappirsskorts.
Árið 1817 kom út nýtt starófskver, sem nefndist Nýtilegt
Barnagull éöa stöfunar og lestrarkver handa börnum. Höf-
4